VELKOMIN Í…


SUMARPRÓGRAMMIÐ ’20!

Prógrammið byrjar á mánudaginn og þú ættir að vera komin með aðgang að innri vefnunm og invite í appið.
Lestu vel allan innri vefinn og ekki hika við að spyrja inná grúbbunni ef eitthvað er óljóst. Þú getur líka alltaf sent mér línu á skuli@styrktarklubburinn.is eða inni í appinu en oftar er fljótlegra að spyrja inná grúbbunni því þar eru alltaf margar með góða reynslu sem geta svarað.

ÆFINGAPRÓGRAMMIÐ

YFIRLIT

Velkomin í STERKAR STELPUR sumarprógrammið!

Ef þú hefur verið í STERKAR STELPUR prógrammi áður kannast þú við innri vefinn og viðmótið sem við styðjumst við hér. En þetta prógramm verður töluvert öðruvísi en fyrri prógrömm!

Nú er að koma sumar og því tilvalið að nýta það í að vera aðeins úti en viðhalda eða bæta styrk á sama tíma. Prógrammið verður sett upp þannig að allur líkaminn er tekinn fyrir á hverri æfingu, og því er æskilegt að láta allavega 1 dag líða á milli lyftingaræfinga. En það þýðir ekki að við ætlum að sitja auðum höndum hina dagana.

Nei, aldeilis ekki! Það verður allskonar hreyfing í boði, brekkusprettir, sundferðir, hjólreiðar, fjallgöngur og fleira!

Ef þú nýtir sumarið rétt getur þú endað það í þínu besta formi hingað til, en ekki með bömmer yfir allri bjórdrykkjunni og grillátinu eins og svo algengt er.

STERKAR STELPUR taka sér ekki frí frá þjálfun á sumrin. STERKAR STELPUR vita að þetta er lífsstíll, en ekki enn eitt átakið.

Velkomin í STERKAR STELPUR!

ÚTSKÝRINGAR

Reglan

Regla númer 1,2 og 3 í STERKAR STELPUR er að gera allar lyftur með góðri tækni. Ef þú ert ekki viss með tæknina skaltu finna einkaþjálfara sem getur farið yfir þessar helstu æfingar með þér. Það borgar sig alltaf. Þú getur líka tekið myndbönd og póstað í grúbbuna eða á Instagram og fengið athugasemdir frá mér.

Meiri þyngd er ekki meiðslanna virði…alltaf að reyna að þyngja en bara ef tæknin er í góðu lagi. Að þyngdja eru ekki einu bætingarnar sem við pælum í. Þó þú notir alltaf sömu þyngd en kemst alltaf örlitið dýpra er það bæting. Ef tæknin verður betri er það bæting.

En markmiðið milli æfinga er að reyna að bæta sig á einhvern hátt, sama hvort það sé með aukinni þyngd, fleiri endurtekningum eða betri tækni. Þess vegna er nauðsynlegt að vera með góða æfingadagbók, á gamla mátann eða appið.

Uppsetning á plani

Nú er prógrammið sett þannig upp að þú kemur til með að lyfta allan líkamann 3x í viku og svo verður einn bónus dagur sem snýst út á það að pumpa aðeins axlir og hendur. Hvar þú setur þann dag skiptir ekki öllu máli.

Það skiptir engu hvaða daga þú ferð en það er góð regla að reyna að hafa amk 48 tíma á milli lyftingaræfinga þegar maður er að lyfta allan líkamann.

Mán-mið-fös og svo aukadagurinn á laugardegi er mjög sniðug uppsetning en eins og ég sagði þarna áðan skipta dagarnir ekki öllu máli, bara að þú náir að jafna þig þokkalega á milli æfinga.

A1) og A2)

Þegar þú sérð bókstaf og tölustaf saman eins og A1) eða A2) þá skiptist þú að gera þessar tvær æfingar þangað til öll settin þar eru búin. Tekur þá eitt sett af A1) æfingunni, eitt sett af A2) og endurtaka þangað til öll settin eru búin. Þá ferðu í B æfingarnar. Ef þú æfir í gymmi eða á tíma þar sem þetta er erfitt er í lagi að klára öll sett í A1) áður en þú ferð í A2) en alltaf að reyna að fara eftir prógrammi eftir bestu getu.

Sett x endurtekningar

Settafjöldinn kemur alltaf á undan, þ.e. hversu mörgu sinnum þú gerir æfinguna. Endurtekningar eru svo fjöldi endurtekninga í hverju setti. 4×5 er þá fjögur sett af fimm endurtekningum.

@

@ merkið þýðir hvíld. Þannig að @45 þýðir að þú hvílir í 45 sekúndur eftir settið.

US

US stendur fyrir upphitunarsett og þau sett byggja á prósentum af vinnusetti. Segjum sem svo að æfing sé með US 40-60-80 þá þýðir að það eru þrjú upphitunarsett af æfingunni með 40%-60%-80% af þyngdinni sem þú ætlar að taka í vinnusettinu. Þetta eru bara sirka tölur, þú þarft alls ekki að taka með þér reiknivél á æfinguna.

DS

Í DS(drop settum) tekur þú eitt auka sett þar sem þú lækkar þyngdina um ákveðin % eftir síðasta vinnusett og tekur eins margar endurtekningar og þú getur með góðri tækni. Segjum að þú sért að taka hnébeygju 3×4-6 + 25% DS þá myndir þú klára fyrstu þrjú settin eins og venjulega, segjum að í síðasta settinu hafir þú tekið 5×80 kg þá myndir þú taka 25% af því og taka 60 kg eins oft og þú getur með góðri tækni. Auðvitað er í lagi að námunda upp eða niður ef þú ert ekki með pínulitlar plötur til að fá nákvæma tölu.

Skipta út æfingum

Ef það er einhver æfing sem þú getur ekki gert af einhverri ástæðu, þú hefur t.d. ekki réttan búnað eða það að æfingin veldur þér einhverjum óþægindum að þá er alltaf boðið upp á æfingar til að skipta út. Ef þú smellir á æfinguna þá sérðu „Sub:“ og svo æfingar sem má gera í staðinn. Þá ferðu einfaldlega í substitute og leitar að nýju æfingunni.

Samantekt

Svona gæti þetta þá litið út…

A1)Hnébeygja 4×5 @15 US 40-60-80

A2)Ökklaliðkun 4×10 @60

Segjum að þú ætlir að taka 50 kíló í hnébeygju á æfingunni, þá myndir þú taka þrjú upphitunarsett með 20 kíló – 30 kíló – 40 kíló með svona 20-30 sekúndna hvíld á milli setta. Svo myndir þú taka fyrsta settið af hnébeygjunni, hvíla í 15 sekúndur og fara svo í ökklaliðkun(engin upphitunarsett þar). Hvíla í 60 sekúndur og gera þetta 3x í viðbót. Þá myndir þú fara í æfingu B) eða B1) og B2) eftir því hvað stendur í prógramminu.

UPPHITUN

Upphitunin er gríðarlega mikilvægur partur af vel hönnuðu æfingaprógrammi. Við viljum nota æfingar í upphituninni sem undirbúa okkur fyrir þær æfingar sem við erum að fara að gera ásamt því að liðka okkur til, smyrja liði líkamans og hækka hitastigið. Þú þarft ekki að fara á upphitunartæki líka en mátt það alveg ef þér finnst það betra. Þessar æfingar duga samt alveg til að hita þig vel upp.

Ég set rúlluseríuna alltaf í byrjun en ég vil bara að þú veljir 1-2 vöðva til að vinna með í hvert skipti, bara 1-2 mínútur í heildina. Hjá flestum er þetta framanvert læri eða rass. Jafnvel kálfar eða efra bak. Þú þarft að hlusta á líkamann og vinna á ÞÍNUM veikleikum. Farðu hratt í gegnum þetta, upphitunin á ekki að vera mikið meira en 5-10 mínútur.

UPPHITUN 1

Rúlla vandræðasvæði 1-2 mín. Það geta tildæmis verið framanverð læri eða efra bak.

Spiderman ganga 12 skref

Hnébeygjur með eigin líkamsþyngd 12x

Y, T og W hald 20 sek hver staða

Fótalyftur í magalegu 20x á hlið

Clams 12x á hlið

Útrúllun á bolta 10x

Lóðrétt hopp 3×3 @30

UPPHITUN 2

Rúlla vandræðasvæði 1-2 mín. Það geta tildæmis verið framanverð læri eða efra bak.

Spiderman ganga með brjóstbaksliðkun 12 skref

3D hnébeygjuliðkun 3×3 á fót

Brjóstbaksliðkun á hlið 8x á hlið

Superdogs 5x á hlið

Mjaðmalyftur á öðrum með fót á bekk 12x á hlið

RKC planki 3×10 sek

Lárétt hopp með teygju 3×3 @30

UPPHITUN 3

Rúlla vandræðasvæði 1-2 mín. Það geta tildæmis verið framanverð læri eða efra bak.

Réttstöðuganga 12 skref

Hnébeygjuliðkun 8x

Brjóstbaksliðkun á bekk 12x

Náraliðkun 30 sek á hlið

Froskapump 30x

Mountain climbers 30x

Naked Turkish getup 5x á hlið

UPPHITUN FYRIR SPRETTI

Hnélyftur við vegg 12x á hlið

Aktív hamstrings teygja 30 sek á hlið

Standandi mjaðmaliðkun 30 sek í hvora átt

Ganga á tám 10 metrar

Ganga á hælum 10 metrar

Réttstöðuganga 10 metrar

Hælar í rass 20 metrar

Háar hnélyftur 20 metrar

BYRJENDUR

Byrjendaprógrammið er fyrir allar þær sem eru komnar tiltölulega stutt í lyftingum og hafa ekki verið á STERKAR STELPUR prógrammi áður. Byrjendaprógramm er langt frá því að vera eitthvað auðvelt, langt því frá!

Þær sem fara á byrjendaprógrammið taka ekki test vikuna í byrjun en það er í góðu lagi. Það sem þið gerið í staðinn er að setja þessar æfingar fyrstu vikurnar inn í bætingablaðið og setja bætingar reglulega inn í blaðið í gegnum vikurnar. Í gegnum allt prógrammið má skipta út rack pull fyrir deadlift(réttstöðulyftu) og hnébeygju á kassa fyrir hefðbundna hnébeygju. Þetta eru krefjandi æfingar sem krefjast góðrar líkamsvitundar og liðleika og hæfileikinn til að gera þær vel er ekki sjálfgefinn. Þegar þið treystið ykkur til getið þið svo alltaf lækkað kassann og hækkað minna undir rack pullið þannig að þið nálgist alltaf smám saman þessar hefðbundnu útgáfur.

Byrjendaprógrammið virkar þannig að það eru tveir dagar, Dagur A og Dagur B. Þú skiptist á að gera þessa tvo daga 3x í viku. Fyrsta skiptið sem þú gerir æfinguna gerir þú tvö sett en næstu skipti tekur þú þrjú sett af hverri æfingu. Fyrstu tvær vikurnar yrðu þá svona:

Vika 1

Mánudagur – Dagur A – 2 sett

Miðvikudagur – Dagur B – 2 sett

Föstudagur – Dagur A – 3 sett

Vika 2

Mánudagur – Dagur B – 3 sett

Miðvikudagur – Dagur A – 3 sett og þyngja

Föstudagur – Dagur B – 3 sett og þyngja

Svo virka vikur 3-4 nákvæmlega eins en með nýjar æfingar. Eftir að þú ert búin með þessar fjórar vikur getur þú svo farið beint í Stig 2 og valið hversu oft þú vilt fara, ég mæli með 3x í viku til að byrja með.

VIKA 1-2

Dagur A

A)Upphitun 1

B1)Bikar hnébeygjur 2-3×8-10 @30

B2)Floor pressa 2-3×8-10 @30

C1)Romanian Deadlift 2-3×8-10 @30

C2)1-arm róður í kapalvél 2-3×8-10 @30

D1)Útrúllun á bolta 2-3×8-10 @30

D2)Bóndaganga 2-3×100 metrar @30

Dagur B

A)Upphitun 1

B1)Split hnébeygjur 2-3×8-10 @30

B2)1-arm pressa 2-3×8-10 @30

C1)Hip thrust 2-3×8-10 @30

C2)Niðurtog með þröngu gripi 2-3×8-10 @30

D1)Face Pulls 2-3×20 @30

D2)Sundurtog með teygju 2-3×20 @30

VIKA 3-4

Dagur A

A)Upphitun 1

B1)Hnébeygjur á kassa 2-3×8-10 @30

B2)Floor pressa 2-3×8-10 @30

C1)Rack Pull 2-3×8-10 @30

C2)1-arm róður í kapalvél 2-3×8-10 @30

D1)Útrúllun á bolta 2-3×8-10 @30

D2)Bóndaganga 2-3×100 metrar @30

Dagur B

A)Upphitun 1

B1)Afturstig með handlóðum 2-3×8-10 @30

B2)Axlapressa með stöng 2-3×8-10 @30

C1)Hip thrust 2-3×8-10 @30

C2)Niðurtog með víðu gripi 2-3×8-10 @30

D)Glute Hringur 1, 10 mín

VIKA 1-2

DAGUR A

A)Upphitun 1

Sjá Upphitun flipann

B1)Bikar hnébeygjur 2-3×8-10 @30

Haltu á ketilbjöllu eða handlóði alveg við bringuna. Hafðu gott bil á milli fóta og þegar þú ferð niður hugsaðu um að setjast á milli fótanna á þér. Reyndu að láta olnboga snerta innanverð læri. Stattu svo aftur upp og endurtaktu.

B2)Floor pressa 2-3×8-10 @30

Olnbogar í 30-45 gráðum út frá líkama. Pressa upp og rólega alla leið niður aftur. Stoppa örstutt niðri. Horfðu vel á myndbandið til að sjá hvernig best er að stilla sér upp.

C1)Romanian Deadlift 2-3×8-10 @30

Hérna þarftu að halda stönginni upp að lærunum allan tímann. Skjóttu rassinum afturábak og renndu stönginni niður lærin og rétt niður fyrir hné. Farðu svo upp og spenntu rassinn vel.

C2)1-arm róður í kapalvél 2-3×8-10 @30

Andstæður fótur fram, stoppaðu eina sekúndu með handfangið við bringu.

D1)Útrúllun á bolta 2-3×8-10 @30

Byrjaðu upprétt með hendurnar á boltanum,láttu svo allan líkamann síga rólega niðurávið. Ef þú finnur að mjóbakið fer að fettast ertu komin of langt. Byrjaðu bara á að fara stutt niður og reyndu svo að komast lengra næst.

D2)Bóndaganga 2-3×100 metrar @30

Tekur þunga bjöllu í sitthvora hendina og labbar 100 metra.

DAGUR B

A)Upphitun 1

Sjá Upphitun flipann

B1)Split hnébeygjur 2-3×8-10 @30

Hér hefur þú gott bil á milli fóta og beygir hnéð þannig að það snerti gólf eða fari ansi nálægt því. Klárar annan fótinn áður en þú byrjar á hinum.

B2)1-arm pressa 2-3×8-10 @30

Spennir kviðinn vel, pressar lóðið upp og stjórnar því aftur niður. Má nota handlóð.

C1)Hip thrust 2-3×8-10 @30

Horfðu vel á kennslumyndbandið í Hip thrust

C2)Niðurtog með þröngu gripi 2-3×8-10 @30

Togaðu rétt niður fyrir höku, stoppaðu örstutta stund þar og stjórnaðu alla leiðina upp þannig að þú finnir smá teygju.

D1)Face Pulls 2-3×20 @30

Togaðu kúlurnar á reipinu að eyrum og stoppaðu aðeins þar. Reyndu að finna hreyfinguna koma frá herðablöðunum.

D2)Sundurtog með teygju 2-3×20 @30

Togaðu teygju í sundur með fulla réttu á olnbogum. Hugsaðu um að kreista herðablöðin saman í eina sekúndu.


VIKA 3-4

DAGUR A

A)Upphitun 1

Sjá Upphitun flipann

B1)Hnébeygjur á kassa 2-3×8-10 @30

Horfðu á bæði hnébeygjumyndböndin. Byrjaðu með aðeins hærri kassa en ég er með í myndbandinu, þannig að þegar þú sest niður eru mjaðmir aðeins fyrir ofan hné. Þú mátt standa svolítið vítt hérna. Farðu niður og sestu aðeins á kassann. Ég vil að þú stoppir alveg góða sekúndu niðri, setur svona 50% af þunganum á kassann og sprengir upp og spennir rassinn.

B2)Bekkpressa með handlóðum 2-3×8-10 @30

Láttu lóðin síga rólega niður að bringu og pressaðu upp. Olnbogar eiga ekki að vera beint út heldur í svona 30-45 gráðum út frá líkama.

C1)Rack Pull 2-3×8-10 @30

Stilltu stöng upp þannig að hún sé rétt fyrir neðan hné. Haltu bakinu beinu og kassanum upp og stattu upp með stöngina. Kreistu rassinn eins og þú getur uppi. Haltu stönginni að lærunum allan tímann. Þessa æfingu má gera allt prógrammið þegar réttstöðulyfta(deadlift) er í prógramminu.

C2)1-arm róður 2-3×8-10 @30

Beint bak og vel spenntur kviður. Byrjaðu hreyfinguna í herðablaðinu og stoppaðu eina sekúndu uppi.

D1)RKC planki 2-3x4x10sek @30

Horfðu á myndbandið. 4×10 sek í hverju setti með sirka 4-5 sekúndna hvíld milli endurtekninga.

D2)Bóndaganga með lóð í annarri 2-3×100 metrar @30

Reyndu að vera eins bein og þú getur þegar þú gengur með lóðið.

DAGUR B

A)Upphitun 1

Sjá Upphitun flipann

B1)Afturstig með handlóðum 2-3×8-10 @30

Taktu gott skref afturábak og reyndu að láta fremra hnéð ekki fara fram fyrir tær. Má nota stöng eins og í myndbandinu eða handlóð niður með síðum.

B2)Axlapressa með stöng 2-3×8-10 @30

Spenna kvið vel og pressa beint upp í loft. Enda með stöngina í lóðlínu fyrir ofan eyru.

C1)Hip thrust 2-3×8-10 @30

Sjá myndband

C2)Niðurtog með víðu gripi 2-3×8-10 @30

Toga rétt niður fyrir höku og stoppa aðeins þar. Rétta svo alveg úr olnbogum á leiðinni upp.

D)Glute Hringur 1, 10 mín

A)Hliðarspark í kapal 15x á hlið

B)Afturspark í kapal 15x á hlið

C)Hip thrust með teygju um hné 20x

Endurtaka þangað til 10 mín eru búnar

LYFTINGAPRÓGRAMMIÐ

STIG I (VIKA 1-4)

Í stigi 1 erum við ekkert mikið að flækja hlutina. Fyrsta vikan er test vika þar sem þú prófar hvar þú stendur í nokkrum lyftum(sjá undir útskýringar). Fyrir utan það skaltu vara rólega fyrstu vikuna, átta þig aðeins á þyngdunum og skilja alltaf eftir 2-3 endurtekningar í tankinum(nema í testunum). Eftir því sem vikurnar líða ætlar þú að bæta við þyngd eða endurtekningum þannig að þú reynir að taka alltaf aðeins meira á hverri æfingu.

Ef þú hefur litla reynslu af lyftingum skaltu byrja á byrjendaprógramminu í einn mánuð og byrja svo á stigi 2 þegar þú ert búin með byrjendaprógrammið.

A1)Hip thrust með fætur á bekk 3×10-20 @30

Hérna liggur þú á bakinu með fætur uppi á einhverskonar hækkun. Keyrir mjaðmirnar upp, klemmir rasskinnarnar saman uppi í eina sekúndu og ferð niður aftur.

Sub: Mjaðmalyftur, hip thrust, hip thrust á öðrum fæti

A2)Útrúllun á bolta 3×12 @30

Byrjaðu upprétt með hendurnar á boltanum,láttu svo allan líkamann síga rólega niðurávið. Ef þú finnur að mjóbakið fer að fettast ertu komin of langt. Byrjaðu bara á að fara stutt niður og reyndu svo að komast lengra næst.

Sub: RKC planki, Hnélyftur í tæki, Uppsetur á bolta

B)Bikar hnébeygja 3×10 @90

Hérna viljum við að olnbogar leiti í átt að innanverðum lærum og að þú þrýstir hnjánum vel í sundur. Hælar eiga alltaf að vera fastir í gólfi og kassinn uppi. Farðu bara eins djúpt og þú treystir þér til og reyndu smám saman að vinna í dýptinni eftir því sem líður á. Gott að spenna rassinn vel þegar þú kemur upp og passa að fetta ekki mjóbakið.

Sub: Hnébeygjur í TRX, Hnébeygjur með eigin líkamsþyngd, hnébeygjur, hnébeygjur með þyngd að framan, Zercher hnébeygjur,

C1)Róður í tæki 3×8-10 @60

Hugsaðu um að byrja hreyfinguna með því að toga herðablöðin aftur. Gott að stoppa svo eina sekúndu áður en þú stjórnar þyngdinni til baka. Mátt alveg gera þetta aðeins hægar en í myndbandinu

Sub: 1-arm róður með handlóði eða í kapal, sitjandi róður, róður með handfangi í landmine

C2)Floor pressa 3×10 @60

Olnbogar í 30-45 gráðum út frá líkama. Pressa upp og rólega alla leið niður aftur. Stoppa örstutt niðri. Horfðu vel á myndbandið til að sjá hvernig best er að stilla sér upp.

Sub: Bekkpressa með handlóðum, bekkpressa með handlóðum á skábekk

D1)Romanian deadlift með handlóðum 3×10 @30

Frábær æfing fyrir rass, aftanvert læri og mjóbak ef hún er gerð rétt. Haltu lóðunum allan tímann alveg að líkamanum. Þau eiga að renna niður læring þegar rassinn skýst vel afturábak. Fínt að hugsa að einhver hafi bundið reipi í rófubeinið á þér og togi þig afturábak. Bakið á að vera alveg þráðbeint og hnén beygjast lítið sem ekkert. Kemur svo hratt upp og kreistir rasskinnarnar saman.

Sub: Romanian deadlift með stöng, Good mornings, Glute ham raise, Bakfettur með áherslu á rass

D2)Hliðarlyftur 3×15 @30

Hér getur verið gott að halla sér örlítið fram í mjöðmunum, beygja olnbogana aðeins og halda létt í lóðin. Sprengja upp og stjórna niður.

Sub: Sitjandi hliðarlyftur

A1)Face pulls með teygju 3×20 @30

Hugsaðu um að toga olnbogana hátt upp, togaðu teygjuna að höku. Stilltu henni upp í brjósthæð. Reyndu að finna vöðvana aftan á öxlinni vinna vinnuna.

Sub: Face pulls með reipi, Y-T-W Lyftur

A2)Latsavirkjun 3×10 @30

Hér viljum við virkja latsana aðeins með power latsavirkjun. Ekki nota þríhöfðana í þetta, haltu olnbogunum þokkalega beinum og þrýstu teygjunni aðeins inn í lærin á þér í neðstu stöðu.

Sub: Standandi niðurtog halla sér fram

B)Bekkpressa með þröngu gripi 3×10 @90

Hérna viljum við grip sem er sirka axlabreidd til að reyna vel á þríhöfðana. Stjórnaðu rólega niður og reyndu að halda olnbogum þokkalega nálægt síðum. Farðu alveg niður á bringu og sprengdu svo stöngina upp. Stoppaðu aðeins uppi og reyndu að finna þríhöfðann kreistast(„bingó vöðvinn“)

Sub: Bekkpressa, bekkpressa með handlóðum, þríhöfðarétta með reipi í kapalvél

C1)Róður í landmine 3×10 @60

Hérna tekur þú handfang sem er oftast notað í sitjandi róðri eða niðurtogi og setur undir stöngina. Skjóttu rassinum út með beint bak og spenntan kvið. Þú mátt stoppa aðeins uppi, ekki gera þetta alveg jafn hratt og ég geri í myndbandinu.

Sub: Sitjandi róður, róður með stöng, róður í tæki, 1-arm róður

C2)Landmine pressa 3×10 @60

Hérna notar þú landmine græju en það er yfirleitt hægt að redda þessu með því að setja stöng inn í handklæði og út í horn til dæmis. Haltu í endann á stönginni og pressaðu upp og stoppaðu aðeins uppi. Komdu svo rólega með stöngina niður aftur. Passaðu að spenna kvið og rass vel og það á ekki að vera neinn snúningur á efri líkama. Halda góðri spennu og stöðugleika.

Sub: Krjúpandi 1 arm pressa, krjúpandi landmine pressa, sitjandi axlapressa, Arnold pressa, axlapressa með stöng, 1-arm axlapressa, skábekkur með handlóðum

D1)Split hnébeygjur stöðug spenna 3×15 @0

Hérna ferðu eins djúpt niður og þú kemst og reynir að halda frekar rólegu tempói án þess að stoppa uppi. Semsagt stöðugt pump þar sem þú pumpar eins mörg reps og þú getur á þessu rólega tempói. Passaðu að hafa alltaf hælinn á fremri fætinum vel límdan í gólfið, ekki leyfa honum að lyftast.

Sub: Split hnébeygjur, afturstig

D2)Sitjandi hamstring curl 3×15 @60

Passaðu að hafa mjóbakið fast í bakinu, svo er þetta bara spurning um að kreista vel aftanvert læri, toga hælana niður og stoppa aðeins þar. Þegar þú ert komin með ágætis tök á þessu getur þú svo prófað að rétta alveg úr hnjánum og kreista framanvert læri í efstu stöðu.

Sub: Liggjandi hamstring curl, Fótakreppa á bolta

 

A1)RKC planki 3x3x10 sek @30

Í RKC planka myndar maður spennu í öllum líkamanum og eins og segir í myndbandinu er gott að spenna rass, læri og kvið alveg eins og þú getur ásamt því að hugsa um að toga olnboga í átt að tám. Reyndu að halda þessari spennu ásamt því að anda í 10-15 sekúndur áður en þú færð 3-4 sekúndur í pásu og gerir þetta 2x í viðbót!

Sub: Hefðbundinn planki, planki á hnjám, pallof pressa

A2)Sundurtog með teygju 3×15-20 @30

Klemma herðablöðin vel saman, halda olnbogum alveg beinum.

Sub: Öfugt flug í tæki, Y-T-W hald

B)Rack pull 3×10 @90

Hér þarftu að stilla þér upp þannig að stöngin sé rétt fyrir neðan hnéskel. Hugsaðu um að kreista og halda spennu í „lötsunum“ allan tímann, ekki hafa áhyggjur þó þú náir ekki sambandi við þá en reyndu að æfa þig reglulega í að spenna þá(sjá myndband á innri vefnum undir „myndbönd“). Haltu stönginni upp að lærunum allan tímann og stoppaðu alveg niðri. Ekki rykkja upp og passaðu að halda brjóstkassanum fram á við. Byrjaðu léttar en þú getur og reyndu að ná þessari tengingu við latsana. Ég vil að þú hafir yfir-yfir grip hérna, semsagt ekki blanda gripinu en það er í lagi að nota strappa eða kalk til að ná betra gripi.

Sub: Trap bar deadlift, sumo deadlift, romanian deadlift

C1)Niðurtog með þröngu gripi 3×10 @0

Hér er notast við þröngt grip og togað bara rétt niður fyrir höku. Stoppað aðeins þar og svo stjórnað þyngdinni til baka. Engin sveifla en sprengja þyngdina niður.

Sub: Niðurtog með víðu gripi, upphífingar, upphífingar í tæki eða teygju, framhallandi niðurtog

C2)Bicep curl með handlóðum 3×10 @60

Lóðin snúast á leiðinni upp og niður. Kreista tvíhöfðann vel uppi og stjórna hreyfingunni.

Sub: hammer curl, curl með reipi í kapalvél, liggjandi curl á skábekk

D1)Armbeygjur í Smith vél 3×12 @0

Ég set Smith vél en það má nota hvað sem er til að hækka undir hendurnar og gera æfinguna þannig auðveldari. Hugsaðu um að setja olnbogana sirka 30-45 gráður út frá líkama og standa þannig að bringubeinið stefni á stöngina. Haltu smá spennu á rass og kvið allan tímann.

Sub: Armbeygjur á hnjám, bekkpressa með handlóðum, bekkpressa á skábekk

D2)Þríhöfðaréttur á skábekk 3×12-15 @60

Hér vísa olnbogar upp í loft og haldast stöðugir þar. Stjórnaðu lóðunum í átt að öxlum og réttu svo úr og kreistu þríhöfðana uppi.

Sub: French pressa, þríhöfðarétta með reipi í kapalvél

A1)Arnold axlapressa 3×10 @0

Í Arnold pressu byrjar þú með lóðin þannig að lófarnir vísa að andlitinu. Þegar þú pressar upp snýrðu höndunum smám saman þannig að lófarnir vísa frá andlitinu í efstu stöðu. Svo ferðu andstæða leið til baka.

Sub: Sitjandi axlapressa, axlapressa með stöng, axlapressa í Landmine, hálfkrjúpandi 1-arm axlapressa

A2)Axlapressa 3xMAX með sömu @0

Spenntu kviðinn vel og þrýstu mjóbakinu í sætið og reyndu að halda þeirri spennu allan tímann. Sprengdu upp og stjórnaðu rólega niður og ef þú vilt setja mest álagið á axlirnar skaltu ekki rétta alveg úr uppi og ekki stoppa. Stöðug spenna upp og niður.

Sub: Axlapressa, Arnold pressa, axlapressa í Smith vél, Landmine pressa

A3)Sitjandi hliðarlyftur 3×15 @90

Það þarf ekki mikla þyngd hér, hugsaðu um að reyna að byrja hreyfinguna með axlarvöðvunum og ná þannig tengingu við þá. Stoppaðu örstutt uppi og stjórnaðu niður.

Sub: Standandi hliðarlyftur

B1)Face pulls með reipi 3×15 @0

Hugsaðu um að keyra olnbogana upp fyrst og svo fara hnefar í átt að eyrum. Stoppaðu þar í góðar 2 sekúndur.

Sub: Face pulls með teygju, W-lyftur, öfug fluga í kapalvél

B2)Y-lyftur á bekk 3×15 @0

Hér þarf ekki mikla þyngd því þetta er erfið hreyfing og litlir vöðvar sem eiga að vinna vinnuna. Ekki rykkja lóðinu upp, reyndu að gera þetta undir góðri stjórn.

Sub: Y-T-W hald, Y-lyftur á gólfi

B3)Framhallandi axlarlyftur 3×15 @90

Skjóttu rassinum vel út og haltu bakinu beinu. Beygðu olnbogana aðeins og fljúgðu eins og fuglinn.

Sub: Sitjandi framhallandi axlarlyftur, face pulls, pull aparts, t-lyftur á bekk

C)Bóndaganga með lóð fyrir ofan höfuð MAX á 4 mín

Hér heldur þú olnboganum alveg læstum og lóðinu beint fyrir ofan öxl. Taktu léttara en þú heldur að þú getir, því þetta er mjög erfitt!
Ef þú ert að taka max í 4 mín skaltu bara skipta um hönd reglulega þegar þú verður þreytt. Reyndu samt að halda einhverju jafnvægi milli hægri og vinstri.

Sub: Bóndaganga með lóð við bringu, bóndaganga með einu lóði, bóndaganga með lóð við öxl

STIG II (VIKA 5-8)

Við höldum áfram með 3 „full body“ æfingar í viku og svo auka pump dag fyrir hendur og kvið.

A1)Liggjandi hamstring curl 3×15 @0

Pumpar aðeins blóði í aftanvert lærið. Reyndu að halda smá spennu á rassinum allan tímann. Þegar þú ferð niður og réttir úr hnjám getur verið gott að kreista framanverð lærin í eina sekúndu.

Sub: Fótakreppa á bolta, sitjandi hamstring curl

A2)Power slamm 3×5 @30

Nú færðu sko smá útrás! Fínt að hafa pall fyrir neðan boltann en ef hann skoppar vel er það óþarfi. Spenna kviðinn vel, leyfa boltanum að fara vel upp fyrir höfuð og skjóttu svo rassinum aðeins út þegar þú hendir boltanum. Notum allan líkamann hérna!

Sub: Kassahopp, lóðrétt hopp, lárétt hopp í teygju, Power framkast

B)Hnébeygjur 4×6-8 @90

Fínt að taka 1-2 upphitunarsett með léttari þyngdir. Svo er hægt að hafa sömu þyngd í gegnum öll settin eða breyta þyngdunum þannig að hvert sett sé mjög krefjandi. Aðalatriðið er að halda tækninni góðri og reyna eftir fremsta megni að taka aðeins meiri þyngd í næstu viku. Við viljum góðar djúpar beygjur hérna. Ef þú sérð eða finnur að þú ert ekki að ná góðri dýpt þarftu að byrja á hnébeygjum á kassa. Það er alls ekkert verri æfing. Smám saman er svo hægt að lækka kassann eftir því sem vikurnar og mánuðirnir líða.

Sub: Hnébeygjur á box, bikar hnébeygjur, split hnébeygjur, front hnébeygjur

C1)Sitjandi róður með þröngu gripi 3×10 @60

Hafðu smá beygju á hnjánum og bakið alveg beint. Hugsaðu um að byrja hreyfinguna með herðablöðunum og setja bringuna út á móti þegar þú togar. Stoppaðu eina sekúndu við bringu og stjórnaðu svo til baka. Bakið á ekkert að hreyfast hérna.

Sub: Róður með stöng, róður í Smith vél, 1-arm róður, róður í tæki

C2)Bekkpressa með handlóðum á víxl 3×20 @60

Handlóðapressa þar sem önnur hendin stoppar uppi til skiptis. Best að byrja með bæði lóð uppi, láta annað síga og upp aftur og telja það sem 1 rep. Teldu bara aðra höndina hérna.

Sub: Bekkpressa með handlóðum, Floor pressa

D1)Romanian deadlift með stöng 2×8 @60

Hérna þarftu að halda stönginni upp að lærunum allan tímann. Skjóttu rassinum afturábak og renndu stönginni niður lærin og rétt niður fyrir hné. Farðu svo upp og spenntu rassinn vel. Ef þú finnur teygju á leiðinni niður er það frábært en þessi æfing getur verið mjög erfið að fatta til að byrja með. Hugsaðu bara um að skjóta bossanum veeeel afturábak.

Sub: Romanian deadlift með handlóðum, good mornings, bakfettur með áherslu á rass

D2)Axlaþrísett með teygju 3x(15+10+15) @60

Þessar þrjár æfingar eru gerðar án pásu eða með lágmarks pásu milli æfinga. Þið ættuð að kunna allar þessar æfingar. 15x facepulls, 10x upp og yfir og 15 pull-apart

Sub: Axlacomplex með handlóðum

A1)Stretchers 3×15 @30

Hérna viljum við fá góða teygju á latsana þannig að skoðaðu vel myndbandið. Þegar ég toga set ég bringuna á móti og horfi fram en þegar ég fer til baka horfi ég niður og leyfi þyngdinni að toga aðeins í latsana. Sub: Niðurtog með þröngu gripi, niðurtog með víðu gripi

A2)Planki í armbeygjustöðu 3×20-30 sek @30

Ef þú horfir vel á myndbandið sérðu breytinguna þegar ég byrja að spenna allt saman. Ég hugsa um að halda á blaði í handarkrikunum, kreista rass og kvið ásamt því að ímynda mér að ég togi hendur í átt að tám. Þá myndast gríðarleg spenna í öllum líkamanum. Reyndu að halda þessari spennu og anda á sama tíma! Sub: RKC planki, Planki

B)Bekkpressa 4×6-8 @90

Þung bekkpressa, borgar sig að vera með spotter hérna eða biðja einhvern um að standa fyrir aftan þig. Rassinn má ekki fara af bekknum og hugsaðu um að nota allan líkamann og spyrna hælunum vel í gólfið. Getur verið gott að toga herðablöðin vel saman áður en þú byrjar og halda þeim þar. Sub: Bekkpressa með handlóðum, floor pressa

C1)Öfugur róður í Smith vél 3×8-10 @60

Í öfugum róðri á líkaminn að vera þráðbeinn á leið upp og niður. Spenntu vel kvið og rass og ekki leyfa mjöðmunum að síga. Togaðu þig upp og stoppaðu með olnboga við síðuna, ekki leyfa þeim að fara langt aftur fyrir. Því meiri halli á þér, því erfiðari er æfingin. Það má alveg gera þessa æfingu í TRX líka, oft auðveldara að stilla sér upp á þann hátt. Sub: Öfugur róður, í TRX sitjandi róður, róður með stöng

C2)Armbeygjur í Smith vél 3×8-10 @60

Ég set Smith vél en það má nota hvað sem er til að hækka undir hendurnar og gera æfinguna þannig auðveldari. Hugsaðu um að setja olnbogana sirka 30-45 gráður út frá líkama og standa þannig að bringubeinið stefni á stöngina. Haltu smá spennu á rass og kvið allan tímann. Sub: Armbeygjur á hnjám, bekkpressa með handlóðum, bekkpressa á skábekk

D1)Framstigsganga 3×20 skref @0

Ef þú vilt að mesta álagið sé á rassinn hallar þú þér aðeins fram í mjöðmunum en ef þú ert alveg upprétt fer álagið meira yfir á framanverð lærin. Passaðu að planta fætinum á fremri vel í gólfið og ekki leyfa hælnum að lyftast. Sub: Afturstig, split hnébeygjur, framstig/afturstig combo

D2)Froskapump 3xMAX @90

aaa, froskapumpið. Pumpaðu vel upp og hugsaðu um að kreista rassinn í hverri endurtekningu. Sub: Mjaðmalyftur, froskapump með teygju, pull through með teygju

A1)1-arm róður í landmine 3×15 @30

Hérna skýtur þú rassinum afturábak með bakið alveg beint og beygir hnén aðeins. Spenntu kviðinn vel og settu andstæða hendi á hnéð fyrir aukinn stuðning. Stöðug spenna og ekkert stopp í þessari. Byrjaðu hreyfinguna á herðablaðinu og reyndu að leyfa því að hreyfast vel allt settið.

Sub:1-arm róður í kapalvél, 1-arm róður

A2)TRX fallouts 3×10 @30

Þessi er skemmtileg og krefjandi. Líkaminn fer niður og upp sem ein heild og eina hreyfingin er í gegnum axlarliðinn. Allt annað á að vera vel spennt og lítil sem engin hreyfing. Prófaðu þig áfram með hallann til að gera hana erfiðari/léttari.

Sub: Útrúllun á bolta

B)Réttstöðulyfta 4×6-8 @90

Hér vil ég gefa sama ráð og með hnébeygjuna, ef þú ræður ekki við að taka hefðbundna réttstöðulyftu(deadlift) frá gólfi mæli ég með því að hækka undir plöturnar á einhvern hátt eða nota trap bar stöng(stöng sem þú stígur inn í). Smám saman eykst liðleikinn og tæknin verður betri og þú getur alltaf lækkað stöngina neðar og neðar þangað til hún er komin niður í gólf. Horfðu vel á kennslumyndbandið, í grunninn eru allar þessar æfingar mjög svipaðar. Þetta eru einhverjar allra bestu æfingar sem þú getur gert, en ef þær eru gerðar illa getur það farið…illa. Byrjaðu frekar of létt, taktu endilega vídjó og sendu mér og ég gef þér góð ráð.

Sub: Trap bar deadlift, romanian deadlift, sumo deadlift, rack pull

C1)Niðurtog með stöng með víðu gripi 3×8-10 @0

Togaðu bara rétt að höku og stoppaðu örstutt þar. Leyfðu svo stönginni að fara alveg upp undir stjórn og fáðu smá teygju á latsana uppi.

Sub: Niðurtog með þröngu, Upphífingar í teygju eða tæki

C2)Hammer curl 3×12-15 @60

Hér vísa lófar að hvor öðrum, enginn snúningur.

Sub: Curl með teygju, curl með reipi í dragvél

D1)Bekkpressa með handlóðum 3×10 @0

Láttu lóðin síga rólega niður að bringu og pressaðu upp. Olnbogar eiga ekki að vera beint út heldur í svona 30-45 gráðum út frá líkama. Stoppaðu örstutt uppi.

Sub: Bekkpressa með stöng, floor pressa, bekkpressa með handlóðum í smá halla

D2)French pressa 3×10 @60

Hérna skaltu hugsa um að leyfa stönginni að fara vel afturábak þegar hún fer niður. Rétta svo úr olnboga og kreista þríhöfðann uppi. Alltaf að kreista þríhöfðann í fullri réttu í öllum þríhöfðaæfingum.

Sub: Þríhöfðarétta með reipi, þríhöfðarétta með stöng í kapalvél, þríhöfðarétta með teygju

A1)Curl með stöng 3×6 @0

Pumpa aðeins í bís! Taktu ágætlega þunga stöng og sprengdu upp. Stoppaðu aðeins í mestu spennunni og KREISTU vöðvann eins og þú getur áður en þú lætur stöngina síga niður undir stjórn. Ef það eru engar nógu léttar stangir í ræktinni þinni getur þú skipt út stönginni fyrir handlóð.

Sub: Curl, Hammer curl, curl með reipi í dragvél, Curl með teygju

A2)Curl á skábekk 3×10 @0

Farðu alveg niður í góða teygju en ekki alla leiðina upp. Stoppaðu í mestu spennunni.

Sub: Preacher curl, sitjandi bicep curl, curl með bringu á skábekk

A3)Curl 3xMAX @120

Lóðin snúast á leiðinni upp og niður. Kreista tvíhöfðann vel uppi og stjórna hreyfingunni.

Sub: hammer curl, curl með reipi í kapalvél, liggjandi curl á skábekk

B1)Bekkpressa með þröngu gripi 3×6 @0

Hérna viljum við grip sem er sirka axlabreidd til að reyna vel á þríhöfðana. Stjórnaðu rólega niður og reyndu að halda olnbogum þokkalega nálægt síðum. Farðu alveg niður á bringu og sprengdu svo stöngina upp. Stoppaðu aðeins uppi og reyndu að finna þríhöfðann kreistast(„bingó vöðvinn“)

Sub: Bekkpressa, bekkpressa með handlóðum, þríhöfðarétta með reipi í kapalvél

B2)Þröngar armbeygjur í Smith vél 3×10 @0

Þetta má alveg gera á einhverskonar kassa eða bekk. Aðalatriðið er að hækka aðeins undir hendurnar til að gera æfinguna aðeins léttari. Farðu rólega í gegnum þetta og réttu alveg úr og kreistu þríhöfðann í efstu stöðu.

Sub: Þröngar armbeygjur á hnjám, bekkpressa með þröngu gripi

B3)Þröngar armbeygjur á hnjánum 3xMAX @120

Hérna erum við að einblína á þríhöfðann, þess vegna eru þær þröngar. Hægt að gera á hnjám eða með hendurnar á einhverskonar upphækkun.

Sub: Þröngar armbeygjur í Smith, þröngar armbeygjur, bekkpressa með þröngu gripi

C1)Öfugar kviðkreppur á bolta 3×6 @0

Þessi er alveg vel krefjandi. Ferð í armbeygjustöðu með fætur á bolta. Togar svo hnén í átt að bringu og stjórnar svo rólega til baka. Reynir að enda í fullkomnum planka.

Sub: Útrúllun á bolta, uppsetur á bolta, hnélyftur í tæki

C2)Útrúllun á bolta 3×10 @0

Byrjaðu upprétt með hendurnar á boltanum,láttu svo allan líkamann síga rólega niðurávið. Ef þú finnur að mjóbakið fer að fettast ertu komin of langt. Byrjaðu bara á að fara stutt niður og reyndu svo að komast lengra næst.

Sub: RKC planki, Hnélyftur í tæki, Uppsetur á bolta

C3)Kviðkreppur á bolta 3xMAX @120

Ein klassísk kviðæfing. Hugsaðu um að toga rifbein og mjaðmagrind saman uppi og stoppa og kreista aðeins þar. Ekki toga með höndunum og enga sveiflu.

Sub: Öfugar kviðkreppur, planki, Fótalyftur í tæki, útrúllun á bolta

STIG III (VIKA 9-12)

Við höldum áfram með 3 „full body“ æfingar í viku og svo auka pump dag fyrir rass og bak.

A1)Hamstring curl á bolta 3×10 @0

Hérna hugsar þú um að halda mjöðmunum uppi og góðri spennu á rassvöðvunum allan tímann. Togar hælana að þér undir stjórn og ferð rólega til baka.

Sub: Hamstring curl á handklæði, hamstring curl í tæki(liggjandi eða sitjandi)

A2)Pallof pressa 3×10 @30

Í pallof pressu stendur þú á hlið í kapalvél, spennir vel kvið og rass og heldur í handfangið með nærhendinni. Höndin fjær styður létt við. Svo pressar þú beint út frá miðlínu og stoppar í eina góða sekúndu með full útrétta olnboga áður en þú ferð til baka.

Sub: Krjúpandi pallof pressa, útrúllun á bolta, bóndaganga með einu lóði, chop í kapalvél

B)Hnébeygjur 5×4-6 @90

Fínt að taka 1-2 upphitunarsett með léttari þyngdir. Svo er hægt að hafa sömu þyngd í gegnum öll settin eða breyta þyngdunum þannig að hvert sett sé mjög krefjandi. Aðalatriðið er að halda tækninni góðri og reyna eftir fremsta megni að taka aðeins meiri þyngd í næstu viku. Við viljum góðar djúpar beygjur hérna. Ef þú sérð eða finnur að þú ert ekki að ná góðri dýpt þarftu að byrja á hnébeygjum á kassa. Það er alls ekkert verri æfing. Smám saman er svo hægt að lækka kassann eftir því sem vikurnar og mánuðirnir líða.

Sub: Hnébeygjur á box, bikar hnébeygjur, split hnébeygjur, front hnébeygjur

C1)1-arm róður á bekk 3×10 @30

Þessa sér maður eiginlega alltaf gerða frekar illa. Hreyfingin á að byrja í herðablaðinu en ekki upphandlegg. Reyndu að byrja hreyfinguna með því að toga herðablaðið niður í andstæðan rassvasa. Olnboginn á að stoppa við síðuna, annars er hætta á að öxlin kýlist fram.

Sub: Sitjandi róður, 1-arm róður í kapalvél, róður á skábekk, róður í landmine

C2)Bekkpressa með einu handlóði 3×10 @30

Hér notar þú bara eitt handlóð í einu, reynir töluvert á kviðvöðvana að halda jafnvæginu.

Sub: Bekkpressa með handlóðum á víxl, bekkpressa með handlóðum

D)Hip thrust 3×10 @60

Horfðu vel á kennslumyndbandið og fáðu gott pump í rassvöðvana!

Sub: Mjaðmalyftur á gólfi, 1-leg hip thrust, hip thrust með teygju, pull through

E)Framstig afturstig combo 3×10 @60

Hér tekur þú skref fram og ferð svo beint í skref aftur. Stoppar ekkert í miðjunni heldur ferð bara beint úr framstiginu í afturstig. Fram og aftur er ein endurtekning!

Sub: Split hnébeygjur, afturstig, framstig

A1)Róður í TRX 3×10 @30

Í TRX róðri á líkaminn að vera þráðbeinn á leið upp og niður. Spenntu vel kvið og rass og ekki leyfa mjöðmunum að síga. Togaðu þig upp og stoppaðu með olnboga við síðuna, ekki leyfa þeim að fara langt aftur fyrir. Því meiri halli á þér, því erfiðari er æfingin.

Sub: Öfugur róður, sitjandi róður, róður með stöng

A2)Face pulls í TRX 3×10 @30

Þung bekkpressa, borgar sig að vera með spotter hérna eða biðja einhvern um að standa fyrir aftan þig. Rassinn má ekki fara af bekknum og hugsaðu um að nota allan líkamann og spyrna hælunum vel í gólfið. Getur verið gott að toga herðablöðin vel saman áður en þú byrjar og halda þeim þar.

Sub: Bekkpressa með handlóðum, floor pressa

B)Bekkpressa 5×4-6 @90

Þung bekkpressa, borgar sig að vera með spotter hérna eða biðja einhvern um að standa fyrir aftan þig. Rassinn má ekki fara af bekknum og hugsaðu um að nota allan líkamann og spyrna hælunum vel í gólfið. Getur verið gott að toga herðablöðin vel saman áður en þú byrjar og halda þeim þar.

Sub: Bekkpressa með handlóðum, floor pressa

C1)Standandi niðurtog með reipi halla sér fram 3×12 @0

Hérna skýtur þú rassinum út en heldur bakinu beinu. Olnbogar eiga að vera alveg læstir allan tímann og vöðvarnir sem eiga að vinna mestu vinnuna eru stóru bakvöðvarnir undir handarkrikunum. Þeir kallast latissimus eða „latsar“. Mjög mikilvægt að læra að nota þá rétt en það er kennslumyndband um það hérna undir „myndbönd“ flipanum.

Sub:Framhallandi niðurtog, niðurtog, upphífingar, upphífingar í tæki eða teygju

C2)Þríhöfðarétta með reipi 3×15 @60

Hér haldast olnbogar alveg fastir við síðuna. Mátt halla þér aðeins fram. Rétta alveg úr olnbogum og KREISTA!

Sub: Þríhöfðarétta með teygju, þríhöfðaréttur á skábekk

D1)Fótapressa 3×10+10 @0

10 víðar og beint í 10 þröngar. Sjáðu hvernig tempóið hjá mér er, ég er ekkert að flýta mér og reyni að fara jafn hægt í báðar áttir. Þetta á að svíða!

Sub: Sama aðferð: Bikar hnébeygjur, front hnébeygjur, zercher hnébeygjur, hack squat

D2)Split hnébeygjur stöðug spenna 3xMAX @90

Hérna ferðu eins djúpt niður og þú kemst og reynir að halda frekar rólegu tempói án þess að stoppa uppi. Semsagt stöðugt pump þar sem þú pumpar eins mörg reps og þú getur á þessu rólega tempói. Passaðu að hafa alltaf hælinn á fremri fætinum vel límdan í gólfið, ekki leyfa honum að lyftast.

Sub: Split hnébeygjur, afturstig

A1)Pull through 3×15 @0

Hugsaðu um að rassinn skjótist afturábak en haltu framhandleggjunum alveg uppi í nára. Reyndu að finna góða teygju aftan á læri og sprengja svo þyngdina upp. Þarft að halla þér aðeins fram til að detta ekki aftur fyrir þig.

Sub: Froskapump, 1-leg hip thrust, romanian deadlift

A2)Curl með reipi í kapalvél 3×10 @60

Rólegt tempó og reyna að kreista bísepinn eins og þú getur. Halda olnbogum föstum við síðuna allan tímann.

Sub: Curl með handlóðum, curl með stöng, hammer curl

B)Réttstöðulyfta 5×4-6 @90

Hér vil ég gefa sama ráð og með hnébeygjuna, ef þú ræður ekki við að taka hefðbundna réttstöðulyftu(deadlift) frá gólfi mæli ég með því að hækka undir plöturnar á einhvern hátt eða nota trap bar stöng(stöng sem þú stígur inn í). Smám saman eykst liðleikinn og tæknin verður betri og þú getur alltaf lækkað stöngina neðar og neðar þangað til hún er komin niður í gólf. Horfðu vel á kennslumyndbandið, í grunninn eru allar þessar æfingar mjög svipaðar. Þetta eru einhverjar allra bestu æfingar sem þú getur gert, en ef þær eru gerðar illa getur það farið…illa. Byrjaðu frekar of létt, taktu endilega vídjó og sendu mér og ég gef þér góð ráð.

Sub: Trap bar deadlift, romanian deadlift, sumo deadlift, rack pull

C1)Niðurtog með öfugu gripi 3×12 @0

Reyndu að byrja hreyfinguna með því að toga með bakvöðvunum. Leyfðu svo herðablöðunum að fylgja með á leiðinni upp og fá smá teygju í latsana áður en þú togar aftur.

Sub: Niðurtog með víðu gripi, niðurtog með þröngu gripi

C2)Curl með bringu á skábekk 3×10 @60

Stoppaðu eina sekúndu uppi í mestu spennunni og stjórnaðu rólega alla leið niður þannig að þú réttir alveg úr olnbogum.

Sub: Preacher curl, curl með stöng með bringu á skábekk

D1)Fluga yfir í pressu 3×10 @0

Hérna þarf að fara rólega niður og reyna að finna góða teygju á brjóstvöðvunum áður en lóðin eru tekin að öxlum og pressuð upp.

Sub: Flug í kapalvél, flug í tæki, fluga með handlóðum

D2)Pullover 3×10 @60

Spenntu kviðinn vel þannig að mjóbakið sé ekki að fettast. Reyndu að halda olnbogunum þokkalega útréttum og haltu stöðugri spennu allan tímann, ekki slaka á spennunni uppi. Farðu rólega niður í góða teygju.

Sub: Standandi niðurtog halla sér fram

A1)Hip thrust 3×10 @0

Horfðu vel á kennslumyndbandið og fáðu gott pump í rassvöðvana!

Sub: Mjaðmalyftur á gólfi, 1-leg hip thrust, hip thrust með teygju, pull through

A2)Split hnébeygjur 3×10 @0

Hérna ferðu eins djúpt niður og þú kemst og reynir að halda frekar rólegu tempói án þess að stoppa lengi uppi. Passaðu að hafa alltaf hælinn á fremri fætinum vel límdan í gólfið, ekki leyfa honum að lyftast. Byrjaðu bara með eigin líkamsþynd og bættu svo við lóðum. Ef þú ræður ekki við þessa æfingu er sniðugt að halda í TRX bönd á meðan þú ert að byggja upp styrk og liðleika.

Sub: Afturstig, framstig, fótapressa með öðrum fæti

A3)Mjaðmalyftur á öðrum fæti 3xMAX @120

Passaðu að fetta ekki mjóbakið og reyndu að spenna rassinn eins og þú getur uppi. Rétta alveg úr mjöðmum.

Sub: 1-leg hip thrust, mjaðmalyftur

B1)Mjaðmalyftur á gólfi 3×10 @0

Hér er hægt að nota hellings þyngd þar sem þetta er stuttur hreyfiferill og rassinn stór og sterkur vöðvi. Hugsaðu bara um að lyfta þyngdinni upp með rassvöðvunum og stoppa og spenna uppi. Stjórnaðu svo þyngdinni alla leið niður á gólf aftur. Mæli með að nota svona stórar plötur til að geta rúllað stönginni yfir lærin.

Sub: Hip thrust, Mjaðmalyftur, Mjaðmalyftur á bolta, mjaðmalyftur á öðrum fæti,

B2)Bakfettur með áherslu á rass 3×10 @0

Reyndu að toga þig upp með hamstrings(aftanvert læri) og rassvöðvunum. Alveg eðlilegt að finna smá þreytu í mjóbakinu en reyndu eins og þú getur að kreista þessa vöðva. Ekki fetta mjóbakið og stoppaðu bara við fulla mjaðmaréttu.

Sub: Hip thrust, froskapump

B3)Pull through með teygju 3xMAX @120

Þetta er svolítið skrítin æfing en ákaflega góð til að hita vel upp aftanvert læri og rass ef þú gerir hana rétt. Aðalatriðið til að hugsa um hér er að skjóta rassinum vel afturábak og reyna að finna teygju á aftanverðu læri. Leyfa höndunum að fara í gegnum fæturna alveg við nára. Bakið á að haldast alveg þráðbeint og öll hreyfingin kemur úr mjöðmunum. Reyndu að beygja hnén sem minnst. Þegar þú kemur svo upp kreistir þú rassinn í eina góða sekúndu.

Sub: Mjaðmalyftur, Pull through, hip thrust

C1)Good mornings með teygju 3×15 @0

Þessi getur verið svolítið flókin að ná. Hugsaðu bara um að skjóta rassinum eins mikið afturábak og þú getur án þess að beygja hnén. Ef þú færð góða teygju aftan á læri ertu að gera þetta rétt. Svo ferðu hratt upp og kreistir rassinn.

Sub: Good mornings með stöng, mjaðmalyftur

C2)Framstigsganga 3xMAX @120

Ef þú vilt að mesta álagið sé á rassinn hallar þú þér aðeins fram í mjöðmunum en ef þú ert alveg upprétt fer álagið meira yfir á framanverð lærin. Passaðu að planta fætinum á fremri vel í gólfið og ekki leyfa hælnum að lyftast.

Sub: Afturstig, split hnébeygjur, framstig/afturstig combo

ÞOLÞJÁLFUN

Þolþjálfunin kemur alltaf í öðru sæti á eftir lyftingum. Við notum lyftingarnar til að byggja upp styrk og vöðvamassa og svo kemur þolþjálfunin ofan á til að bæta þolið(duh) og hjálpa til við fitubrennslu.

Mataræðið þarf að vera stærstur partur af fitutapinu, en þolþjálfunin hjálpar. Það er samt ekki hægt að æfa af sér slæmt mataræði og ætlast til að ná miklum árangri.

Þannig að mataræðið þarf að vera í lagi áður en þú eyðir mörgum klukkutímum í „brennslu“ vikulega.

Þú þarft að hlusta á líkamann, sjá hversu mikið þú þolir. Ég myndi segja að þið ættuð að taka lotuþjálfun og/eða spretti MAX 2x í viku ef þið eruð að lyfta 3x-4x í viku. Þá er hægt að taka steady state(skokk, hjól, sund og slíkt) 2-3x í viku og LISS(low intensity steady state, basically göngutúrar) eins mikið og þú getur.

Ef þú ætlar að æfa mikið þarf allt annað að vera í góðu lagi. Ef þú sefur bara 6 tíma á nóttu, stressið er hátt og mataræðið ekki nógu gott kemstu ekki upp með að æfa eins mikið og manneskja sem sefur 8 tíma, nær góðri endurheimt með yoga og afslöppun og er með 90% mataræði. Lestu meira um endurheimt hér neðar á síðunni.

Reyndu að gera sem mest af þolþjálfuninni útivið…það er áhrifaríkara að gera þetta í ferska loftinu og fá smá D-vítamín.

Þú þarft alls ekki að gera alla þessa kosti, en þeir eru svona margir svo að allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi og æft þolið á fjölbreyttan hátt.

Þolþjálfunina má gera EFTIR lyftingarnar eða á þeim dögum sem þú ert ekki að lyfta.

ÞOLÞJÁLFUN A

Þolþjálfun A er gamaldags sprettir. 60 sekúndna sprettur og 60 sekúndna hvíld á milli. Það má gera þetta á hvaða tæki sem er í líkamsræktarstöð, spretta úti, á hjóli eða jafnvel í sundi. Ef þú hefur ekki gert þetta áður skaltu byrja á 5-6 sprettum og vinna þig rólega upp í 10-20 mínútur.

ÞOLÞJÁLFUN B

Þolþjálfun B er 8×20 sek með 10 sekúndna hvíld á milli æfinga. Oft kallað tabata en er ekki það sama og upprunalegt tabata en það er aukaatriði. Veldu tvær æfingar til að skiptast á að gera. Gerir til dæmis kaðla í 20 sek, hvílir í 10 sek, beint í boltaslamm 20 sek, hvíla 10 sek og svo framvegis. Aðrar æfingar sem má nota er til dæmis mountain climbers, kb sveiflur, ýta prowler, sprettir ofl. Má líka gera á hjóli t.d.

ÞOLÞJÁLFUN C

Þolþjálfun C er svokallað steady state cardio. Þessi hefðbundna „brennsla“. Farðu út að hjóla, synda eða hlaupa. Haltu álaginu þannig að þú mæðist aðeins en getir haldið uppi samræðum. 20-40 mínútur á frekar rólegu tempói.

ÞOLÞJÁLFUN D

Þolþjálfun D er svokallaður komplex, þar sem þú brennir fitu en byggir upp vöðva á sama tíma. Þú gerir hverja æfinguna á fætur annarri án hvíldar á milli æfinga en 2-3 mín hvild á milli setta. Taktu bara 2 hringi til að byrja með en svo má auka það upp í 3-4.

Framhallandi róður 12x                 Romanian deadlift 12x
Front squat 12x
Axlapressa 6x
Back squat 12x
Good mornings 12x

ÞOLÞJÁLFUN A

Þolþjálfun A er áfram sprettir. 30 sekúndna sprettur og 60 sekúndna hvíld á milli þannig að þú getur gefið ennþá meira í hvern sprett núna. Það má gera þetta á hvaða tæki sem er í líkamsræktarstöð, spretta úti, á hjóli eða jafnvel í sundi.

ÞOLÞJÁLFUN B

Þolþjálfun B er líka sprettir, nema þessir eru virkilega stuttir þannig að ákefðin þarf að vera virkilega mikil. Þetta þarf að gera á turbo(assault) hjóli, venjulegu hjóli eða jafnvel á róðravél. Tekur brjálaða keyrslu í 10 sekúndur og ferð svo rólega í 50 sekúndur. 10-20 mínútur af þessu!

ÞOLÞJÁLFUN C

Þolþjálfun C er svokallað steady state cardio. Þessi hefðbundna „brennsla“. Farðu út að hjóla, synda eða hlaupa. Haltu álaginu þannig að þú mæðist aðeins en getir haldið uppi samræðum. 20-40 mínútur á frekar rólegu tempói.

ÞOLÞJÁLFUN D

Þolþjálfun D er ketilbjöllu komplex, þar sem þú brennir fitu en byggir upp vöðva á sama tíma. Þú gerir hverja æfinguna á fætur annarri án hvíldar á milli æfinga en 2-3 mín hvild á milli setta. Taktu bara 2 hringi til að byrja með en svo má auka það upp í 3-4. Byrjar á veikari hliðinni, klárar allar æfingarnar þar og ferð svo í hina hliðina án þess að hvíla á milli hliða.

KB snatch 10x á hlið

KB hnébeygja við öxl 10x

KB push pressa 10x

KB romanian deadlift á öðrum(fótur á sömu hlið fer upp)

KB sveifla 20x

KB snatch 10x hin hliðin

KB hnébeygja við öxl 10x hin hliðin

KB push pressa 10x hin hliðin

KB romanian deadlift á öðrum(fótur á sömu hlið fer upp) hin hliðin

ÞOLÞJÁLFUN A

Þolþjálfun A eru hardcore brekkusprettir. Passaðu að hita vel upp og taka ekki sprettina 100% keyrslu fyrstu skiptin á meðan þú ert að komast á lagið með þetta. Finndu bara bröttustu brekkuna í nágrenninu og sprettu upp! Labbaðu svo rólega niður og endurtaktu! Fjöldi spretta fer auðvitað eftir þínu formi og lengd/bratta brekkunnar en þú prófar þig bara áfram!

ÞOLÞJÁLFUN B

Þolþjálfun B er skemmtilegur pýramídi. Þú velur þér 2-3 æfingar, gerir 1x hverja æfingu án hvíldar, svo 2x, svo 3x og upp í 10x. Svo ferðu aftur niður 10-9-8-7….. og niður í eina endurtekningu. Það er þægilegast að velja æfingar sem hægt er að gera með eigin líkamsþyngd en það má alveg vera æfingar með ketilbjöllum, lóðum, stöngum eða í tæki. Góðar æfingar fyrir svona pýramída:

Armbeygjur með hendur upphækkaðar

TRX eða öfugur róður

Hnébeygjur með eigin líkamsþyngd eða létt lóð

Slamm

Burpees

KB clean eða snatch

ÞOLÞJÁLFUN C

Þolþjálfun C er svokallað steady state cardio. Þessi hefðbundna „brennsla“. Farðu út að hjóla, synda eða hlaupa. Haltu álaginu þannig að þú mæðist aðeins en getir haldið uppi samræðum. 30-50 mínútur á frekar rólegu tempói.

[embedyt] https://www.youtube.com/watch?v=I8CMlp1KdOk[/embedyt]

ÞOLÞJÁLFUN D

Þolþjálfun D er aftur komplex með stöng, þar sem þú brennir fitu en byggir upp vöðva á sama tíma. Þú gerir hverja æfinguna á fætur annarri án hvíldar á milli æfinga en 2-3 mín hvild á milli setta. Taktu bara 2 hringi til að byrja með en svo má auka það upp í 3-4. Þessi complexi kemur frá Bret Contreras, the Glute Guy!

Power Curls 6x

Push Pressa 6x

Hnébeygja 6x

Good mornings 6x

Mjaðmalyftur 6x

Floor pressa 6x

ÞOLÞJÁLFUN A

Þolþjálfun A er aftur gamaldags sprettir. 60 sekúndna sprettur og 60 sekúndna hvíld á milli. Það má gera þetta á hvaða tæki sem er í líkamsræktarstöð, spretta úti, á hjóli eða jafnvel í sundi. Ef þú hefur ekki gert þetta áður skaltu byrja á 5-6 sprettum og vinna þig rólega upp í 10-20 mínútur.

ÞOLÞJÁLFUN B

Þolþjálfun B er 10-15×10 sek með 30 sekúndna hvíld á milli æfinga. Þetta þarf að gera á tæki þar sem hægt er að taka vel á því í 10 sekúndur og halda uppi góðri ákefð. Mæli klárlega með assault bike(turbo trainer), Prowler(sleði) eða róðravél.

ÞOLÞJÁLFUN C

Þolþjálfun C er svokallað steady state cardio. Þessi hefðbundna „brennsla“. Farðu út að hjóla, synda eða hlaupa. Haltu álaginu þannig að þú mæðist aðeins en getir haldið uppi samræðum. 30-60 mínútur á frekar rólegu tempói.

ÞOLÞJÁLFUN D

Þolþjálfun D er nýr komplex, þar sem þú brennir fitu en byggir upp vöðva á sama tíma. Þessi complex er aðeins öðruvísi en hinir þar sem þú gerir eina endurtekningu af hverri æfingu áður en þú ferð í þá næstu og gerir fimm þannig hringi í einu setti. Fínt að byrja á 2-3 settum með 1-2 mínútur í hvíld á milli setta og bæta svo við. Þú gerir semsagt bara eina endurtekningu af hverri æfingu áður en þú færð í þá næstu og gerir allar æfingarnar fimm sinnum áður en þú setur stöngina niður. Þessi heitir Bear Complex.

Hang Power Clean x1

Front hnébeygja x1

Push pressa x1

Hnébeygja x1

Push pressa x1

HEIMAPRÓGRAMM

Til að nýta heimaprógrammið þarftu að eiga 1-2 teygjur og þær sem ég nota í myndböndunum fást hér. Notaðu sömu upphitun og er fyrir lyftingaprógrammið.

A)Sjá upphitun

B1)Hnébeygjur með eigin líkamsþyngd eða teygju 3×12-15 @30

Farðu eins djúpt og þú ræður við og ef þú getur 15 góðar hnébeygjur getur þú bætt við teygju(m). Kreistu rassinn vel þegar þú stendur upp!

B2)Standandi 1-arm róður með teygju 3×12-15 @30

Reyndu að nota vöðvana í kringum herðablaðið til að toga teygjuna. Stoppaðu eina sekúndu með hendina við síðuna eins og sést á myndbandinu.

C1)Hip thrust 3×15-30 @30

Láttu herðablöðin liggja ofan á sófanum, stoppaðu uppi og kreistu rassinn vel. Getur bætt við einhverri þyngd hérna ef þú vilt.

C2)Axlapressa með teygju, standandi eða krjúpandi 3×6-10 @30

Spenna kviðinn vel og pressa beint upp í l0ft. Ef að standa er of erfitt getur þú farið niður á hné

D1)Niðurtog með annarri 3×10-15 @30

Hérna ferðu niður á hné þeim megin sem þú ert að toga. Eins og í róðrinum ætlar þú að reyna að finna vöðvana í kringum herðablöðin vinna. Stoppaðu niðri eina sekúndu

D2)Þríhöfðarétta með teygju um háls 3×10-20 @30

Réttu alveg úr olnbOgunum og kreistu þríhöfðann vel. Þríhöfðinn er vöðvinn aftan á handleggnum, oft talað um sem „bingó“

A)Sjá upphitun

B1)Good mornings með teygju/m 3×15-20 @30

Þessi getur verið svolítið flókin að ná. Hugsaðu bara um að skjóta rassinum eins mikið afturábak og þú getur án þess að beygja hnén. Ef þú færð góða teygju aftan á læri ertu að gera þetta rétt. Svo ferðu hratt upp og kreistir rassinn.

B2)Bear hug með teygju 3×15-20 @30

Þetta er mjög lítil hreyfing. Þú ert í rauninni bara að toga herðablöðin í sundur.

C1)Sundurtog með teygju 3×15-20 @30

Klemma herðablöðin vel saman, halda olnbogum alveg beinum.

C2)Split hnébeygjur 3×12-15 @30

Hafðu gott bil á milli fóta og farðu rólega með hné í átt að gólfi og aftur upp.

D1)Axlalyftur með teygju 3×6-12 @30

Beinar hendur beint upp í axlarhæð. Rólega niður aftur.

D2)Bicep curl með teygju 3×12-15 @30

Sjáðu hvernig ég held um teygjuna. Togaðu upp og spenntu tvíhöfðann eins og þú getur uppi í eina sekúndu.

A)Sjá upphitun

B1)Hamstring curl á handklæði 3×10-15

Þessi er erfið en gerðu bara eins oft og þú getur.

B2)Brjóstpressa með teygju 3×10-12

Önnur hendi í einu. Ýta fram og stjórna til baka. Reyna að finna smá teygju á brjóstvöðvanum þegar þú kemur til baka.

C1)Armbeygjufærsla 3×30-60 sek

Ef það er of erfitt að „ganga“ svona er í fínu lagi að halda bara armbeygjustöðu eins lengi og þú getur.

C2)Liggjandi róður með teygju 3×10-15

Hérna stoppar þú niðri eina sekúndu

D1)Afturspark með teygju 3×15-20

Kreista rassinn vel og reyna að sparka beint út.

D2)Serratus stafrófið 3x á hlið

Önnur hendi föst við brjóst, hin útrétt og reyna að toga herðablaðið út á við eins og í bear hug. Svo bara byrjar þú að mynda stafrófið með hendinni!

ÚTIPRÓGRAMM

Útiprógrammið er tilvalið að nota ef þú ferð eitthvað í frí og hefur ekki aðgang að líkamsrækt eða hreinlega kemst ekki í ræktina einhvern daginn. Notaðu sömu upphitun og er fyrir lyftingaprógrammið.

A1)Mjaðmalyftur á öðrum fæti 3×6-20

A2)Öfugur róður 3×6-15

B1)Afturstig 3×15-30

B2)Armbeygjur með hendur hækkaðar 3×6-15

C1)RKC planki 3x3x10 sek

C2)Hnébeygjur með eigin líkamsþyngd 3×15-30

D1)Clams 3×12-20/hlið

D2)Mountain climbers3x20-30

A1)Hip thrust með fætur á  bekk 3×8-20

Hérna liggur þú á bakinu með fætur uppi á einhverskonar hækkun. Keyrir mjaðmirnar upp, klemmir rasskinnarnar saman uppi í eina sekúndu og ferð niður aftur.

A2)Hanga 3xMAX

Hérna ætlar þú bara að hanga eins lengi og þú getur!

B1)Hátt uppstig 3×12-20/hlið

Finndu eitthvað til að stíga upp á og reyndu að nota efri fótinn eins mikið og þú getur og spyrna lítið með neðri fæti.

B2)Y-T-W-hald 3×20-30 sek á staf

Býrð til þessa stafi með líkamanum og heldur höndunum uppi.

C1)Bein brú 3×12-20

Þessi er lúmsk og tekur vel á þríhöfðunum. Réttu alveg úr olnbogum, notar svo rass og aftanverð læri til að keyra mjaðmirnar upp.

C2)1-leg deadlift 3×12-20

Reynir að halda jafnvægi og skýtur öðrum fætinum afturábak. Rólega og undir stjórn niður og sprengir svo upp og spennir rassinn.

D1)Naked Turkish getup 3×6-8

Þessi er svolítið flókin, en horfðu bara vel á myndbandið.

D2)Burpees 3×10-20

Leggstu á kviðinn og stattu aftur upp!

A1)Leg curl með handklæði eða á pappadisk 3×6-15

Þessi er mjög krefjandi! Þarft bara að vera á gólfi með handklæði eða til dæmis á grasi með pappadisk. Eitthvað sem rennur ágætlega. Spenntu rassinn vel og reyndu að halda mjöðmunum vel uppi allan tímann. Togaðu svo hælana í átt að rassi og svo rólega til baka.

A2)Negatívar upphífingar 3×4-8

Hérna hoppar þú eða stígur upp á kassa þannig að þú kemst yfir stönginga, lætir þig svo síga rólega niður. Ef þú ræður ekki við þetta getur þú bara hangið í staðinn.

B1)Pistols á bekk 3×4-12

Hérna lyftir þú öðrum fætinum og sest rólega niður á bekk og stendur upp aftur. Ef þú getur ekki staðið upp aftur á annarri getur þú notað báðar til að standa upp en svo farið rólega niður á annarri.

B2)Fótalyftur í magalegu 3×20-30/hlið

Kreista rassinn vel og passa að fetta ekki mjóbakið.

C1)Þröngar armbeygjur á hnjám 3×12-20

Má gera þessar líka í hækkun í staðinn fyrir að fara á hné.

C2)Planki yfir í armbeygjustöðu 3×10-15

Fara úr planka yfir í armbeygjustöðu. Spenna kvið og rass vel. Þetta á að reyna vel á kvið og axlir.

D1)Bjarnaganga 3×10-15 metrar

Farðu bara hægt og rólega og reyndu að láta mjaðmagrindina vera mjög stöðuga.

D2)Sprellikallar3x30-40

Smá þol í lokin…

MYNDBÖND OG AUKAEFNI

Málið með svona prógrömm sem gerð eru fyrir stóran hóp er að allir hafa ólík markmið og því er ekki hægt að sérhanna þau fyrir hvern og einn. En þú getur verið þinn eiginn þjálfari og sérsniðið svolítið prógrammið eftir eigin höfði. Ekki of mikið samt, þú getur ekki tekið út heilu æfingarnar eða dagana nema þú virkilega vitir hvað þú ert að gera því það eru pælingar og hugsanir á bakvið prógrammið sem þú hefur ekki hugmynd um og þarft í raun ekkert að vita.

En þú getur bætt aðeins inn í prógrammið ef þú bara hlustar á eigin líkama. Til dæmis ef upphífingar eru stórt markmið hjá þér getur þú bætt inn aðeins meiri upphífingarvinnu. Ef þú vilt stærri rass getur þú tekið glute hring að eigin vali nokkrum sinnum í viku eða æfingar sem pumpa upp rassinn.

En þú getur ekki endalaust bætt við…

Prógrammið er virkilega krefjandi og ef þú ert í Crossfit og hlaupum líka ertu hugsanlega farin að gera allt of mikið. Þú verður að bera ábyrgð á eigin líkama og passa að hlusta á hann. Hvíldin og endurheimtin er alveg jafn mikilvæg eins og það sem þú gerir á æfingu.

Ég vil að þú lærir að hlusta á líkamann og taka ábyrgð á þinni þjálfun. Ég býð upp á þetta en það er þitt að meta hvað þú getur og ert tilbúin í…

15x hliðarspark

15x afturspark

20x hip thrust með teygju um hnén.

Endurtaka í 10-15 mínútur

15 skref í hvora átt í X-göngu

15 afturspörk í teygju

15 útsnúningar á mjöðm

Endurtaka í 10-15 mínútur

Clams 15x á hlið

Froskapump 20x

Fótalyftur í magalegu 20x á hlið

Endurtaka í 10-15 mín

Froskapump með teygju 20x

1,5 rep hnébeygjur með teygju um hné 10x

Sitjandi fráfærsla á mjöðm 20x eða 40x hratt

Endurtaka í 10-15 mín

Latsarnir eru mjög mikilvægir vöðvar fyrir stöðugleika á hrygg og sterkt bak. Engar áhyggjur þó þú finnir ekki strax fyrir þeim í bakæfingum, það tekur oft langan tíma að finna þá en þú veist allavega hvar þeir eru ef þú notar þessa aðferð reglulega.

#STERKARSTELPUR Á INSTAGRAM

[seg_instaportfolio hashtag=“#sterkarstelpur“]

MATARÆÐIÐ

Yfirlit

Út í hvað er ég að fara?

IR mataræðið

Frekar öfgakennt(en mjög heilbrigt í stuttan tíma) mataræði. Ekki raunhæft mataræði í langan tíma en snilld í 10-12 daga. Snýst um að borða bara óunninn, náttúrulegan mat og taka út (næstum) allt sem gæti verið að valda einhverjum meltingavandamálum.

Precision Nutrition mataræðið

Mataræðið sem næstum allar geta verið á út lífið og náð þeim árangri sem þær vilja. Þú átt ekki að fara lengra en þetta nema þú náir að mastera mataræðið algjörlega og viljir fara þessi extra 5%

STST mataræðið

STST stendur fyrir STERKAR STELPUR og er þetta mataræði sérhannað til að ná þessum extra 5% árangri. Þú þarft að vigta allt sem þú setur ofan í þig á þessu mataræði. Tekur mikla vinnu til að byrja með og ekki eitthvað sem ég mæli með að vera mjög lengi á. Byggir að stórum hluta á Flexible Fat Loss frá Mike Samuels og IIFYM(If It Fits Your Macros)

IR Mataræðið

12 daga mataræði hugsað til að taka út hugsanlegar fæðutegundir sem fara illa í þig ásamt því að losa um bjúg og óþarfa vökva. Þetta er frábær leið til að „kickstarta“ fitutapi og algengt er að missa 2-3 kg auðveldlega á þessu mataræði. EN þetta er mjög tímabundið mataræði og bara hugsað til að koma sér aðeins af stað líkamlega og andlega. Þetta mataræði hentar alls ekki grænmetisætum.

Þetta er í raun ákaflega einfalt.

Engar mjólkurvörur og engin kolvetni nema úr litríku grænmeti. Þú þarft ekki að telja neinar hitaeiningar og getur í raun borðað eins mikið og þú vilt af eftirfarandi mat:

Kjúklingur, egg, fiskur, kjöt(allt auðvitað óunnið og engu bætt við), allskonar grænmeti eins og paprika og spínat og svo hollir fitugjafar eins og avókadó og ólífuolía.

Þetta krefst þess að þú undirbýrð það sem þú ætlar að borða daginn áður en þetta þarf alls ekki að vera flókin matargerð.

Dæmi um máltíðir:

Morgunmatur: Egg og beikon, ommeletta með fullt af grænmeti, Steikt egg með pulsum án aukaefna úr kjötbúðum, hakkbuff og egg

Hádegismatur: Stórt salat með smá ólífuolíu og kjúklingabringu

Kvöldmatur: Ofnbakaður lax með stóru salati, nautasteik með gufusoðnu brokkolí og smjörklípu.

Má borða

„Óunnið“ kjöt, Egg, Fiskur, Kjúklingur

Allt grænmeti fyrir utan rótargrænmeti eins og rófur, kartöflur og gulrætur

Íslenskt smjör

Avókadó

Avókadó olía, ólífuolía, hörfræolía

Möndlur, hnetur og hnetusmjör í hófi

Heimagerð möndlumjólk í hófi

Svart kaffi og te

Öll krydd, salt og jurtir sem ekki innihalda sykur

Má EKKI borða

Allar kökur og sætindi

Mjólkurvörur. Það þýðir engir ostar og ekkert mysuprótein.

Ávextir og ávaxtasafar. Engin ber heldur.

Soja vörur

Kartöflur, rófur og gulrætur

Brauð eða kornvörur

Áfengi

Fræ og baunir

Unnar kjötvörur

Gervisætur. Það útilokar flest preworkout og fæðubótarefni eins og Amino Energy.

Það er alveg eðlilegt að missa nokkur kíló á þessum fáu dögum, vissulega er stór partur af því vatn og bjúgur en hellings fita líka. Margir fá flensulík einkenni á einhverjum tímapunkti en það líður yfirleitt fljótt yfir. Þú mátt alveg búast við orkuleysi, höfuðverk og sleni á einhverjum tímapunkti. Það er mjög mikilvægt að drekka vel af vatni og borða MIKIÐ af grænu grænmeti til að fá nóg af trefjum. Annars geta hægðirnar orðið ansi harðar, og það er ekki skemmtiefni…

Fyrstu 10 dagana fylgir þú reglunum hér fyrir ofan, en dag 11 og 12 máttu rólega bæta inn 1-2 ávöxtum á dag ásamt kartöflum, sætum og hrísgrjónum eftir lyftingaæfingar.

Ekki bæta inn öllu sem þú varst vön að borða inn í mataræðið á sama tíma. Prófaðu að bæta við einum hlut í einu og sjá hvernig líkaminn bregst við. Ef þér leið rosalega vel á IR og bætir svo við til dæmis einhverri mjólkurvöru og þú finnur að þér líður ekki vel er eftirá er líkaminn kannski ekki að höndla þessa mjólkurvöru. Ef þú bætir inn mjólkurvörum og pasta og allskonar dóti á sama tíma og upplifir einhverja vanlíðan veistu í raun ekkert hvað var að valda. Þess vegna er gott að taka nokkra daga í að fara úr IR yfir í Precision Nutrition mataræðið

Precision Nutrition Mataræðið

Precision Nutrition mataræðið hef ég sett saman með upplýsingum og rannsóknum frá Precision Nutrition næringarþjálfunarnáminu. Ég var næstum búinn að skýra þetta KISS(keep it stupid simple) því þetta á að vera ofur einfalt og geranlegt fyrir alla.

Stærsta atriðið í þessu mataræði er að í stað þess að vigta matinn til að reikna út hitaeiningar er farið í gegnum hvernig á að áætla skammtastærðir með því að nota hendina á sér. Einfalt og auðvelt að fylgja eftir. Ekki alveg jafn nákvæmt eins og að telja hitaeiningar en meira að segja það getur verið afar ónákvæm „vísindi“. Þessar myndir hér fyrir neðan útskýra ástæðuna fyrir því að þetta er svona ónákvæmt, en ef þú vilt getur þú sleppt því að lesa þær og farið beint í að skoða hvaða aðferð virkar betur fyrir flesta og er mun einfaldari í framkvæmd. Þetta er og á að vera fáránlega einfalt. En það sem er einfalt er ekki endilega auðvelt. Byrjaðu á þessari fyrstu mynd hérna og byrjaðu á að laga þá þætti sem koma þar fram. Þetta eri  raun 95% af langtíma árangri. Allt flóknara en þetta er svo bara kremið á kökuna. En þú þarft að vera meistari í undirstöðuatriðunum fyrst.

Hvar á ég að byrja?

Vandamál við að vigta matinn

Skammtastærðir

#Peppogprepp er lykilatriði

Hinn fullkomni hristingur

STST Mataræðið

STST(Sterkar Stelpur) mataræðið er mataræði sem krefst þess að þú vigtir allt sem að þú setur ofan í þig. Þú setur upp þitt eigið matarplan sem hentar þér og þínum smekk eftir ákveðnum reglum sem við förum yfir hérna. Mjög lærdómsríkt mataræði en óþarfi nema fyrir þær sem hafa algjörlega masterað allt í KISS mataræðinu og þurfa extra áskorun.

Mataræðið tekur hellings vinnu til að byrja með en þegar það kemst upp í vana er það eitt besta mataræði sem völ er á, þar sem það byggir á þínum þörfum og hvað hentar þínum líkama. Ég mæli ekki endilega með því að telja hitaeiningar að eilífu en með því að gera þetta í 2-4 vikur í senn lærir maður mjög mikið og fer að verða mjög góður í að horfa á matinn og vita sirka hvað er í honum. Þá er ágætt að endurreikna hlutföllin sín á nokkurra vikna eða mánaða fresti og prófa þá að telja aftur.

Hver er hugmyndafræðin á bak við sveigjanlegt mataræði?

Hugmyndin er að geta hannað sitt eigið matarplan með því að fylgja nokkrum reglum í mataræðinu. Þú finnur út sirka hversu margar hitaeiningar og hlutföll næringarefnanna þú þarft og prófar þig svo áfram. Mataræðið hjá þér er því í stöðugri þróun þar sem áherslurnar breytast, þú lærir betur inn á líkamann þinn og hvað virkar fyrir þig. Ef þú hefur heyrt um IIFYM(If It Fits Your Macros) eða flexible dieting byggir þetta mataræði á þeim grunnreglum. Ég studdist mikið við þessa bók frá Mike Samuels við gerð þessa texta.

Áður en við byrjum að reikna eitthvað vil ég að þú hafir grunnþekkingu á næringarefnunum, hvað þau gera og hvar við finnum þau helst.

HVER ERU NÆRINGAREFNIN?

Næringarefnin eru þrjú
•Prótein
•Fita
•Kolvetni

Tæknilega er alkóhól svo fjórða næringarefnið

HVAÐ GERIR PRÓTEIN?
Næg prótein inntaka hjálpar okkur að byggja upp vöðvamassa og fyrirbyggja vöðvatap þegar við borðum til að minnka fitu. Prótein eru mettandi og eru góð til að halda svengd í skefjum þar sem þau hjálpa þér að vera södd lengur. Melting próteina krefst einnig meiri orku heldur en hinna orkuefnanna, þannig að líkaminn brennir nokkrum auka hitaeiningum við að melta próteinin. Þess vegna er prótein mjög gott orkuefni þegar við erum að reyna að missa fitu og byggja upp vöðva. Á eftir fjölda hitaeininga er næg próteininntaka það mikilvægasta í mataræðinu, bæði þegar kemur að fitutapi og vöðvauppbyggingu.

HVAÐAN FÆ ÉG PRÓTEIN?
Kjöt, fiskur, egg og mjólkurvörur eru góðir próteingjafar. Það er líka eitthvað af próteinum í baunum og eitthvað í hnetum og fræum. En uppistaðan ætti að koma úr kjöti, eggjum, fiski og mjólkurvörum ef þú þolir þær.

HVERSU MIKIÐ PRÓTEIN ÞARF ÉG?
Það er mikið rifist um hversu mikið prótein maður þarf, en það fer svolítið eftir núverandi þyngd, en ágætt er að miða við að reyna að ná 1,5-2 grömmum af próteinum á hvert kíló af líkamsþyngd. 75 kílóa einstaklingur þarf því að fá 112-150 grömm af próteinum á dag. Ef þú ert í yfirþyngd er ágætt að miða við þyngdina sem þú stefnir á.

HVAÐ GERIR FITA?
Fita er okkur algjörlega lífsnauðsynleg og þarf líkaminn hana til að taka upp vítamín, búa til hormón, vernda líffæri og margt margt fleira.

HVAÐAN FÆ ÉG FITU?
Úr kjöti, feitum fisk, hnetum, olíum, smjöri, avókadó o.f.l.

HVERSU MIKLA FITU ÞARF ÉG?
Fitan veltur svolítið á því hversu mikið af kolvetnum þú borðar. Próteininntakan er mikilvægust, og restin af hitaeiningunum kemur frá kolvetnum og fitu, hlutföllin geta verið breytileg. Ágætt er að miða við að 20-40% af hitaeiningunum komi úr fitu. Hérna þarft þú svolítið að prófa þig áfram og líka pæla í því hvort þér finnst fituríkur matur góður eða ef þú kýst frekar að borða hrísgrjón, kartöflur og meira af kolvetnaríkum mat.

HVAÐ GERA KOLVETNI?
Kolvetni eru okkar helsti orkugjafi, en líkaminn notar glúkósa til að keyra okkur áfram. Kolvetni eru ekki beint lífsnauðsynleg þar sem líkaminn getur breytt próteinum í glúkósa og notað sem orku.

HVAÐAN FÆ ÉG KOLVETNI?
Ávextir, grænmeti og korn eru helstu kolvetnagjafarnir.

HVERSU MIKIL KOLVETNI ÞARF ÉG?
Það veltur á ýmsu. Því meira sem þú hreyfir þig, því meira þarftu. Íþróttamaður þarf til dæmis mun meira af kolvetnum heldur en sófakartafla sem vinnur skrifstofuvinnu.

HVAÐ GERIR ALKÓHÓL?
Alkóhól er ekki að fara að hjálpa þér neitt og er oft mikil hindrun í leit að heilbrigðari og öflugri líkama. Ég mæli með því að þú sleppir alfarið áfengi. Ef þú ætlar að fá þér aðeins er best að fá sér bara góðan vodka í sódavatn með lime sneið. Engar óþarfa hitaeiningar í blandinu og vodkinn frekar „hreint“ áfengi.

HITAEININGAR
Hvert næringarefni er með mismargar hitaeiningar
•1 gramm af próteini inniheldur fjórar hitaeiningar
•1 gramm af fitu inniheldur níu hitaeiningar
•1 gramm af kolvetnum inniheldur fjórar hitaeiningar
•1 gramm af alkóhóli inniheldur sjö hitaeiningar

HVERNIG TEL ÉG HITAEININGAR?

Miðað við myndina hér til hægri

Flexible•Prótein = 3g*4 = 12 hitaeiningar
•Kolvetni(carbs) = 37g*4 = 148 hitaeiningar
•Fita = 8g*9 = 72 hitaeiningar
12+148+72 = 232 hitaeiningar
Nokkuð nálægt því, þetta er ekki flókið. Endilega prófaðu að taka nokkrar vörur úr hillunum hjá þér og reikna.
Þegar þú ert að telja næringarefnin er matur með innihaldslýsingu auðveldur. Kíktu á miðann, skrifaðu hjá þér næringarefnin og haltu áfram með daginn.
Til að byrja með er alveg nóg að pæla í próteinum, kolvetnum og fitu.

SKAMMTASTÆRÐIR
Ég veit ekki alveg hvað þetta er hérna á myndinni fyrir ofan en það sem skiptir máli er að pæla í skammtastærðinni. Einn skammtur er greinilega 2/3 af bolla eða 55 grömm. Ef að skammturinn þinn er öðruvísi þarftu að grafa upp reiknivélina og fara að reikna til að fá út rétt macros miðað við skammtinn þinn.

MATUR ÁN INNIHALDSLÝSINGAR
Nú flækjast málin örlítið. Megnið af alvöru mat er ekki með neina innihaldslýsingu utan á sér, eins og til dæmis kjöt, ávextir og grænmeti.
Hérna er nauðsynlegt að ná sér í forrit til að reikna og mæli ég með því að nota myfitnesspal.com en þeir eru líka með app þar sem þú getur hent inn því sem þú borðar á tveimur mínútum og þá þarftu ekki að gera alltsaman um kvöldið. Hellingur af íslensku stöffi þar inni.
Málið flækist svo aðeins meira þegar þú ferð út að borða, en þá verður þú bara að áætla gróflega macros í matnum, en maður verður betri í því með æfingunni. Auk þess ættir þú að elda flestar þínar máltíðir svo þú vitir hvað þú borðar.

MÆLINGAR
Ef þú ætlar að telja hitaeiningar þarftu að eiga eldhúsvog, þær eru ódýrar og nauðsynlegar ef þú ætlar að telja hitaeiningar. Smá fjárfesting, en algjörlega þess virði þegar þú byrjar að nota hana.

HVERSU MARGAR HITAEININGAR ÞARF ÉG?
aaa, stóra spurningin. Þetta krefst smá útreikninga. Eigum við að hefjast handa? Ef þú færð hausverk við að reikna getur þú notað þessa online reiknivél hér(settu prótein í High). Ef þú ert smá stærðfræðilúði og vilt vita hvernig þetta virkar skaltu lesa áfram…
Byrjaðu á að finna út BMR hér.
BMR stendur fyrir Basal Metabolic Rate eða grunnbrennslu. Þetta er sá fjöldi hitaeininga sem þú þarft ef þú myndir bara liggja allan daginn. En þú gerir það ekki er það nokkuð?
Nú ætlar þú að margfalda BMR:
Ef þú ert kyrrsetumanneskja = BMR x 1,2
Ef þú hreyfir þig smá(létt hreyfing 1x-3x í viku) = BMR x 1,375
Ef þú hreyfir þig meðal(meðal hreyfing 3x-5x í viku) = BMR x 1,55
Ef þú hreyfir þig mikið(Erfið hreyfing/íþróttir 6x-7x í viku) = BMR x 1,725
Ef þú hreyfir þig mjög mikið(Mjög erfið hreyfing/íþróttir 6x-7x í viku og líkamlega krefjandi vinna) = BMR x 1,9
Þá færðu hitaeiningafjöldann sem þú þarft til að viðhalda núverandi þyngd ef að það er markmiðið.
Ef þú vilt þyngja þig bættu við 300 hitaeiningum og sjáðu hvað gerist.
Ef þú vilt missa fitu þarftu að innbyrða færri hitaeiningar en þú brennir.
Hérna þarf svolítið að prófa sig áfram en 500 hitaeiningar virkar vel fyrir flesta. Taktu of mikið frá og þér líður ekki vel, taktu of lítið frá og fitan fer hægt eða ekkert.

AF HVERJU 500?
500 færri hitaeiningar daglega gera 3500 hitaeiningar í mínus á einni viku, sem þýðir(mjög gróflega) að þú missir eitt pund(hálft kíló) á viku. Þetta er flott fyrir meðal Jón og Gunnu.
Ef einstaklingur á við offitu að stríða má hækka þetta upp í 750 hitaeiningar og ef manneskja er mjög grönn og létt en vill samt missa þessa síðustu fitu er gott að miða við 20% skerðingu.
Semsagt ef manneskja þarf 1500 hitaeiningar til að halda sömu þyngd myndi hún kötta hitaeiningarnar niður í 1200 þar sem 1000 hitaeiningar er hættulega lítið.

SVEIGJANLEGT MATARÆÐI
Gæði matarins skiptir miklu máli en magnið skiptir meira máli þegar markmið tengd líkamssamsetningu eru aðalatriðið.
Stærstur hluti af matnum sem þú borðar þarf að vera þokkalega hollur, en smá drasl inn á milli er langt frá því að vera slæmt.
Að borða á þennan hátt sem ég er að fara að kenna þér kallast sveigjanlegt mataræði, sem felst í því að þú getur borðað það sem þú vilt svo lengi sem þú borðar rétt magn hitaeininga og næringarefnin(prótein, fita og kolvetni) stemma.
Ég hvet þig til að fá megnið af hitaeiningunum úr lítið unnum mat en það skiptir engu máli hvort þú borðar hvít hrísgrjón eða brún, ferskt eða frosið grænmeti eða ef þú skiptir hafragrautnum út fyrir cocoa puffs annað slagið.
Ef þú myndir bara telja hitaeiningar myndir þú ná árangri, en til að ná líkamanum þínum upp á næsta stig þarftu að pæla líka í næringarefnunum.

PRÓTEIN
Til að gera þetta roooosalega einfalt vill ég að þú borðir einhversstaðar á milli 1,5-2 grömm af próteinum fyrir hvert kíló af líkamsþyngd. Ef þú ert 80 kíló vill ég að þú fáir þá í kringum 120-160 grömm af próteinum daglega. Þetta er það mikilvægasta sem þú gerir! Byrjaðu á að ákveða tölu hérna sem þú prófar svo í 2 vikur. Í þessu reikningsdæmi ætla ég að halda áfram með 2 grömm fyrir þennan 80 kílóa einstakling.
120*4 til 160*4 =480 til 640 hitaeiningar.

FITA
Ágætis tala hér er að miða við að fá 25% af hitaeiningunum sem þú innbyrðir úr fitu.
(Hitaeiningar*0,25)/9 = Fjöldi gramma af fitu.
Segjum að ég þurfi 2500 hitaeiningar til að léttast, (2500*0,25)/9 = 70 grömm af fitu.
Hérna deili ég með 9 vegna þess að í einu grammi af fitu eru 9 hitaeiningar manstu.
70*9 = 630 hitaeiningar úr fitu

KOLVETNI
Þá eru bara kolvetnin eftir, þá er þetta bara einfalt reikningsdæmi.
(Heildar hitaeiningar-hitaeiningar úr próteinum-hitaeiningar úr fitu)/4 = grömm af kolvetnum.
Tökum tölurnar hérna að ofan…
(2500-640-630)/4 = 307 grömm af kolvetnum.
Semsagt, dæmið okkar myndi borða…
2500 hitaeiningar
160 grömm prótein
70 grömm fita
307 grömm kolvetni

HVERNIG VIRKAR ÞÁ STST MATARÆÐIÐ?

STST mataræðið er í þróun, og verður það aðeins „flóknara“ eftir því sem vikurnar líða og þú lærir meira. En til að byrja með snýst þetta bara um að reikna út fjölda hitaeininga og hlutföll næringarefnanna og reyna að vera sem næst þeim tölum. Til þess er fínt að nota Myfitnesspal til að sjá hvað þú ert að borða, en þú skalt ekki pæla í hlutföllunum sem að Myfitnesspal gefur þér upp og ekki setja hreyfingu inn í MFP, það ruglar alltsaman. Notaðu tölurnar sem þú reiknaðir út hér fyrir ofan og notaðu svo Myfitnesspal til að sjá hvað þú ert að borða í raun. Skilið?

Svo snýst þetta bara um að prófa sig aðeins áfram með hlutföllin, próteinið á að vera nokkuð stöðugt en það má aðeins auka kolvetnin en þá verður fitan að fara niður. Líka öfugt, ef þú vilt borða aðeins meiri fitu þurfa kolvetnin að minnka. Þannig prófar þú þig áfram og sérð hvað virkar og hvað virkar ekki fyrir þig.

EN HVAÐ EF ÉG VILL EKKI TELJA HITAEININGAR OG MACROS?
Það er vel hægt að breyta líkamanum án þess að telja eina einustu hitaeiningu eða pæla lítið í macros.
En þá hefur þú lítið frelsi til að sérsníða þitt mataræði. Þú nærð langmestum árangri ef þú lærir að telja macros og borðar mat sem hentar þér. Getur jafnvel borðað smá ís á hverjum degi án þess að fá nokkuð samviskubit.
Hinsvegar ef þú ætlar ekki að telja hitaeiningar ertu alltaf að reyna að standast freistingar, borða hollt og færð samviskubit þegar þú borðar eitthvað annað en er á listanum þínum.
Það virkar alveg fyrir suma, að vera bara “ALL IN” alla daga og svindla kannski smá um helgar. Passa bara að ein svindlmáltíð breytist ekki í heila sukkhelgi. Kíktu á clean eating hér fyrir ofan ef þú heldur að STST sé ekki fyrir þig.

1.Stig STST

1.stig STST er það mikilvægasta, en það er að ná tökum á að telja hitaeiningar og hlutföll næringarefnanna. Þegar þú ert búin að prófa þig áfram með það og telur þig vera komin með nokkuð góð tök og skilning á þessu getur þú byrjað á stigi 2.

2.Stig STST

2.Stig snýst út á að tryggja að þú fáir nóg af trefjum en flestir fá of lítið af þeim. Trefjar eru kolvetni sem líkaminn getur ekki melt og eru nauðsynleg til að hafa góða meltingu. Samkvæmt Vísindavefnum eru tvennskonar trefjaflokkar; leysanleg og óleysanleg trefjaefni. Haframjöl, hnetur, baunir, epli, bláber, heilkorn, hýðisgrjón, gúrkur, gulrætur og hnetur eru allt góðir trefjagjafar. Einnig má nefna husk fræ og chia fræ sem frábæra trefjagjafa.

Ágætt er að miða við í kringum 25-30 grömm af trefjum á dag ef þú ert heilbrigð, og ef þú ert mun neðar en það skaltu auka hægt og sígandi við magnið, annars gæti postulínið orðið besti vinur þinn.

3.Stig STST

3.Stigið snýst um að prófa sig áfram með hlutföllin á kolvetnum og fitu. Ef þú ert að reyna að léttast en það er lítið að gerast ættiru fyrst að minnka hitaeiningarnar um svona sirka 100 kkal. Ef það virkar í einhverjar vikur og þú vilt prófa eitthvað nýtt getur þú hækkað fituna á kostnað kolvetna. Mundu bara að fyrir hvert gramm af fitu sem þú bætir inn verður þú að taka rúm 2 grömm af kolvetnum út. Þetta er vegna þess að 1 gramm af fitu eru 9 hitaeiningar en 1 gramm af kolvetnum eru 4 hitaeiningar. Ef þú vilt þyngja þig og bæta við þig vöðvamassa getur verið gott að auka við kolvetnin á kostnað fitu. Sérstaklega ef þú ert að æfa og hreyfa þig duglega.

Próteinin eiga alltaf að vera hin sömu, þannig að þú þarft ekkert að pæla í að breyta þeim, nema þú léttist eða þyngist mikið.

4.Stig STST

Endurmat. Þú þarft reglulega að endurreikna hitaeiningaþörfina þína eftir því sem þú léttist/þyngist og orkuþörfin breytist. Ágætt að miða við að reikna aftur þegar þyngdin breytist um 1 kíló.

5.Stig STST

Þegar þú ert komin með öll fyrri stig á hreint og vantar nýtt challenge getur þú farið að pæla í tímasetningum máltíða. Í rauninni snýst það eiginlega um að nýta kolvetnin sem best með því að innbyrða sem mest af þeim í kringum æfinguna. Þannig stjórnar þú svolítið seyti á insúlíni og hvað verður um kolvetnin sem þú innbyrðir. Ef þú borðar megnið af þeim eftir æfinguna hámarkar þú líkurnar á því að þau nýtist í vöðvauppbyggingu en fari ekki í fituforða.

MARKMIÐASETNING

Markmiðasetning er stór partur af áskoruninni, en markmiðasetning er eins og hvað annað. Því oftar sem maður gerir það, því betri verður maður í því. Í þessari áskorun verða tvennskonar markmið.

Annarsvegar útkomumarkmið og hinsvegar hegðunarmarkmið. Útkomumarkmið er eitthvað sem við stefnum að, en getum ekki endilega stjórnað 100%. Þess vegna setjum við okkur líka hegðunarmarkmið sem stuðla að því að ná þessum útkomumarkmiðum. Byrjaðu á að lesa um og setja þér útkomumarkmið hér fyrir neðan.

Svo er tilvalið að nota stigakeppnina í sumar til að setja sér markmið, bæði hegðunarmarkmið(fara í fjallgöngu í hverri viku) og útkomumarkmið(lenda í topp 10 í stigakeppninni)

Útkomumarkmið eru þessi hefðbundnu markmið:

  • Ég vil missa X kíló
  • Ég vil passa í X fatastærð
  • Ég vil lyfta X mikilli þyngd
  • Ég vil hlaupa X kílómetra
  • Ég vil ganga X gönguleið

Semsagt, útkoman sem þú vilt ná eftir allt erfiðið. Ég vil að þessi markmið séu það sem kallast SMART.

S= Skýr (Mikilvæg, lýsandi og skiljanleg.)

M= Mælanleg

A= Alvöru (Þú ÆTLAR að ná þeim)

R = Raunhæf

T = Tímasett (Verða að hafa tímasetningu)

Lélegt markmið: Ég ætla að verða sterkari.

Gott SMART markmið: Ég ætla að gera 10 armbeygjur á gólfi. Ég næ markmiðinu 10.apríl.

Hérna er markmiðið mælanlegt og það er komin tímapressa, þú veist nákvæmlega hvenær þú ert búin að ná markmiðinu.

Lélegt markmið: Ég ætla að laga mataræðið

Gott SMART markmið: Ég borða fisk tvisvar í viku, borða grænmeti með öllum máltíðum og drekk vatn í staðinn fyrir gos/ ávaxtasafa. Þegar ég er búin að standast þetta í fjórar vikur kaupi ég nýjan æfingabol(verðlaun).

Það er ágætt að setja sér nokkur markmið mislangt fram í tímann. Til dæmis markmið sem þú ætlar að ná á fjórum vikum, tólf vikum og svo jafnvel markmið sem þú ætlar að ná á einu ári.

Þegar þú ert búin að setja þér nokkur útkomumarkmið er kominn tími til að brjóta þessi markmið niður og setja sér hegðunarmarkmið sem stuðla að því að ná þessum markmiðum.

Við getum í raun ekki stjórnað því hvort við náum útkomumarkmiðunum, en við höfum mun meiri stjórn á hegðunarmarkmiðunum og því er mikilvægt að setja sér bæði og endurskoða markmiðin reglulega.

Hegðunarmarkmið snúa að því hvað við ætlum að gera til að það verði líklegra að við náum útkomumarkmiðunum okkar. Segjum sem svo að útkomumarkmiðið sé að taka 100 kíló í réttstöðulyftu. Þá væri útkomumarkmiðið svona:

Ég tek 100 kíló í réttstöðulyftu frá gólfi einu sinni með góðri tækni. Markmið næst fyrir 1.maí.

Til þess að ná þessu markmiði þarftu að setja þér nokkur hegðunarmarkmið. Til dæmis…

  1. Ég lyfti eftir STERKAR STELPUR prógramminu amk 3x í viku
  2. Ég sef 7-8 tíma á hverri nóttu
  3. Ég borða amk 3 máltíðir á dag með lófastærð af próteingjafa
  4. Ég rúlla mig í 10 mínútur fyrir svefninn

Útkomumarkmiðinu getur þú ekki endilega stjórnað en hegðunarmarkmiðunum getur þú yfirleitt stjórnað 100%. Þá skiptir kannski ekki öllu máli þó þú náir ekki útkomumarkmiðinu svo lengi sem þú stendur við hegðunarmarkmiðin.

Reyndu eins og þú getur að forðast neikvæð markmið, eitthvað sem þú vilt hætta að gera. Eins og til dæmis:

  • Hætta að drekka gos
  • Hætta að borða ruslmat
  • Hætta að reykja

Þessi markmið eru virkilega erfið andlega séð þar sem við endum oftast á að gefast upp þegar við bönnum okkur eitthvað. Við klikkum kannski eitthvað aðeins einu sinni, þá er allt búið og við getum alveg eins gefist upp.

Jákvæð markmið toga þig hinsvegar í átt að einhverju sem þú girnist og á sama tíma togar þig frá því sem þú ert að reyna að forðast. Þau einblína líka á það að líða vel og að gera hluti sem eru góðir fyrir okkur

Jákvæð markmið geta til dæmis verið:

  • Að borða meira grænmeti og ávexti
  • Búa til hollan mat fyrirfram til að grípa í
  • Drekka vatnsglas með öllum máltíðum
  • Borða hægar; reyna að láta hverja máltíð vera allavega 15 mínútur.

Jákvæð markmið hafa skýra og jákvæða stefnu og hjálpa þér að átta þig á hvað þú þarft að gera, halda áfram að gera og prófa að gera meira af.

Markmið eiga ekki að vera negld í stein og þurfa að vera sífellt í endurskoðun því þetta er eins og annað. Við verðum mun betri í þessu með æfingunni. Til að byrja með gætir þú sett þér annaðhvort of auðveld eða of krefjandi markmið, þá bara endurskoðar maður markmiðin sín reglulega og setur sér ný eftir því sem áherslur breytast. Þannig er ekkert stórmál að ná ekki útkomumarkmiðunum svo lengi sem hegðunarmarkmiðunum sé fylgt eftir.

ENDURHEIMT

Endurheimt eða „recovery“ er allt sem þú gerir til þess að jafna þig sem best á milli æfinga. Á æfingum erum við að brjóta líkamann niður og því er hvíldin og endurheimtin rosalega mikilvæg til að hefja uppbyggingu á ný. Hversu mikið álag í hreyfingu þú kemst upp með fer í raun algjörlega eftir því hversu vel þú nærð að jafna þig á milli æfinga. Þeir sem hafa betri endurheimt geta því æft meira og lagt meira í æfingarnar og ná því betri árangri.

Það eru nokkrir þættir sem skipta mestu máli í endurheimt en þeim verður betur lýst hér fyrir neðan.

Svefn er það allra mikilvægasta sem þú gerir. Ef þú ert ekki að ná amk 7 tímum á nóttu ertu ekki að sofa nóg og ert að skilja eftir bætingar í tankinum. Ef það er bara eitt sem þú tekur út úr þessari áskorun þá ætti það að vera það að koma svefninum í gott lag.

Það er rosalega margt hægt að gera til að bæta svefninn. Til dæmis:

  • Að slökkva alltaf á raftækjum klukkutíma fyrir svefn og nota tímann til að ná fram slökunarástandi í líkamanum.
  • Að hafa algjört myrkur og frekar kalt inni í svefnherberginu.
  • Að fara alltaf að sofa og vakna á sama tíma
  • Að taka magnesíum fyrir svefninn
  • Að taka hugleiðslu og/eða djúpöndun fyrir svefninn
  • Að rúlla og teygja fyrir svefninn
  • Að nota svefnherbergið einungis til að sofa og stunda kynlíf, ekki horfa á sjónvarp eða vera í símanum.
  • Skilja símann eftir frammi

Það er algengur misskilningur að þú komir meiru í verk ef þú sefur minna og það sé eitthvað virðingarvert að þurfa lítinn svefn. Flestir þurfa að sofa meira og finna þegar þeir fara að gera það hvað þeim líður mikið betur. Byrjaðu á að laga svefninn, og þegar hann er kominn í gott lag getur þú byrjað að prófa þig áfram með hinar aðferðirnar hér fyrir neðan.

Næring er mjög mikilvægur þáttur í endurheimt. Þú ert að stunda þungar lyftingar og þarft mögulega að borða meira og á skynsamlegri þátt en áður. Að borða minna en maður þarf er í raun stressástand fyrir líkamann og ekki hollt í lengri tíma. En ef maður er að reyna að missa fitu er það nauðsynlegt. Þá er mikilvægt að nýta hverja hitaeiningu og fylla matarplanið með næringaríkum mat. Þú þarft að passa að þú sért að fá nóg af öllum vítamínum og steinefnum. Þú gerir það með því að borða fjölbreytta fæðu fulla af mismunandi ávöxtum, grænmeti, fitu- og próteingjöfum.

Prótein er mjög mikilvægt fyrir uppbyggingarferlið í líkamanum og gott er að miða við 1,7-2,0 grömm af próteinum á hvert kíló af líkamsþyngd. 60 kílóa manneskja ætti því að stefna að 102-120 grömmum á dag.

Það getur líka verið gott að borða nóg af fæðu eða fæðubótarefnum sem hafa bólguminnkandi áhrif eins og til dæmis feitur fiskur(ómega-3) og hin ýmsu krydd. Turmeric(curcumin er svo unnið úr turmeric og er sterkara) hefur mjög góð áhrif á bólgur og er náttúrulegt krydd.

Svo á móti er gott að takmarka eins og maður mögulega getur fæðu sem getur valdið bólgumyndunum eins og til dæmis verksmiðjuframleiddar jurtaolíur, sykur, transfita o.fl. Einhverjir geta þolað illa mjólkurvörur, baunir, gluten og kornvörur en þú þarft að læra inn á þinn líkama, hvað virkar fyrir þig og hvað veldur þér óþægindum.

Þú ert alveg örugglega ekki að anda rétt. Jú þú ert að anda og það er að halda þér á lífi en ekkert mikið meira en það. Langflestir fullorðnir þurfa að læra að anda upp á nýtt. Ef þú fylgist með barni eða dýri anda sérðu hvað við fullorðna fólkið erum að gera vitlaust. Við öndum allt of mikið upp á við og notum að mestu leyti vöðva sem eiga aðeins að hjálpa önduninni en ekki gera mestu vinnuna. Dýrin og börnin anda meira út á við og nota þannig okkar besta öndunarvöðva, þindina.

Ef þú vilt æfa þig í öndun getur verið gott að leggjast á bakið og leggja hendurnar á kviðinn og anda svo djúpt „niður í kvið“. Kviðurinn á að þenjast út í allar áttir og þú ættir að fá stærri „bumbu“. Ég veit það er ekkert mjög sexý að anda svona, sérstaklega ef maður stendur og kviðurinn þenst út. Sérstaklega ef við erum búin að venja okkur á að draga inn kviðinn í mörg ár. Því er fínt að byrja rólega í þessu, kannski æfa sig eftir æfingar og fyrir svefninn. Þetta er frábær leið til að framkalla slökunarferli í líkamanum og láta líkamann byrja að gera við skemmdirnar sem þú framkallaðir á æfingu. Reyndu að anda djúpt inn um nefið og láta kviðinn þenjast vel út og hleypa loftinu svo rólega út um stút á vörunum. Reyndu að vera aðeins lengur að anda frá þér en þú varst að anda að þér.

Byrjaðu bara á að æfa þig í þessu í fimm mínútur 2x á dag og reyndu svo að bæta smám saman við. Áður en þú veist af verður þú farin að æfa þig í þessu í bílnum á leiðinni heim úr vinnunni í stressandi umferð og þegar þú stendur í biðröð á kassanum í Bónus.

Rúllan er frábær til að ná fram slökun í vöðvunum þannig að ég mæli með því að hún sé notuð eftir æfingar og á kvöldin frekar en fyrir æfingar. Ef þú þarft að vinna á einhverju sérstöku vandamáli og þarft að bæta liðleika á einhverju svæði fyrir æfingar er það gott og blessað líka en hennar stærsti kostur er að flýta fyrir endurheimt eftir æfingar. Rúlluserían hér fyrir neðan tekur á þessum stærstu vöðvum og svo mæli ég klárlega með því að allar eigi svona lítinn nuddbolta til að ná dýpra og vinna á stífleika sem rúllan nær kannski ekki til. Æfðu djúpöndunina og aldrei halda niðri í þér andanum. Þú ert að reyna að ná fram slökun í líkamanum þannig að ef þú ert að spennast upp og hættir að geta andað þarftu að létta á þunganum.

Ein allra besta leiðin til að flýta fyrir endurheimt er að taka góðan göngutúr. Það er líka ein besta leiðin til að brenna fitu á sama tíma og maður viðheldur vöðvamassa. Gangan fer vel með liði(annað en skokkið) og er rosalega góð fyrir okkur. Reyndu að hreyfa þig eitthvað daglega og góður göngutúr getur verið liður í því. Gakktu rösklega þannig að þú verðir aðeins móð og farir jafnvel að svitna aðeins. 30 mínútur er góður tími til að stefna að. Ef þú gerir það á bretti settu smá halla á brettið og gakktu rösklega.

Þrýstingur, heitt/kalt, sund, nudd, yoga og slökun eru allt frábærar leiðir til að bæta endurheimt. Gerðu eins mikið og þú hefur tíma fyrir og efni á af þessum atriðum sem ég hef talað um hérna og líkaminn á eftir að þakka þér fyrir.

ÝMISLEGT

TILKYNNINGAR

Stigablaðið er tilbúið og við byrjum þetta af fullum krafti á mánudaginn! 💪

BÆTINGABLAÐIÐ

Passaðu vel upp á bætingablaðið þitt! Þetta snýst allt saman um að bæta styrk í þessum helstu æfingum. Listinn er alls ekki tæmandi og ég hvet þig til að bæta við sem flestum æfingum inní blaðið. Fylltu inní þær lyftur sem þú veist maxin þín núþegar og sjáðu styrkinn fljúga upp næstu mánuði og ár. Þær sem hafa verið áður nota sama blað og bæta inní…

Ýttu hér til að sækja bætingablaðið

GRÚBBAN

Það hefur margsýnt sig að Facebook grúbban er eitt mikilvægasta atriðið í STERKAR STELPUR prógrömmunum og það virðist vera mikil fylgni á milli virkni í grúbbunni og árangurst sem næst. Því skaltu koma strax í grúbbuna og vera virk þar!

ÝTTU HÉR TIL AÐ KOMA Í GRÚBBUNA!

Facebook grúbban er mjög mikilvæg til að skapa samfélag í kringum STERKAR STELPUR. Þar er einnig best að komast í samband við Skúla þjálfara með því að tagga @Skúli Styrktarþjálfari.

Höldum umræðunum líflegum!

ÁRANGUR

Það er til fjölda leiða til að fylgjast með árangri í líkamsræktinni. Besta leiðin er að sjá tölurnar á stönginni fara upp, þ.e. að styrkjast yfir lengri tíma.

Myndir eru frábærar, og ættu allir sem stunda lyftingar að taka reglulega myndir af sér.

Ummál, fitu%, þyngd getur allt hjálpað til að fylgjast með.

Síðast en ekki síst er það hvernig þér líður. Ertu að sofa betur? Hefur þú meiri orku? Líður þér betur andlega? Passa fötin betur?

Styrktaraukning

Þú skalt sækja Bætingablaðið í flipanum hérna til hægri. Þar skaltu alltaf fylla inn í þegar þú nærð persónulegum metum í stóru æfingunum. Passaðu samt alltaf upp á tæknina, það er ekki þess virði að ná persónulegu meti ef þú ert líkleg til að slasa þig. Bætingablaðið er alls ekki tæmandi og þér er frjálst að bæta inn þínum uppáhalds æfingum.

Myndir

Ég mæli með að þú takir myndir af þér á mánaðarfresti. Reyndu að taka myndirnar á sama tíma dags í svipaðri birtu og svipuðum fötum. Flott að taka myndir að framan, aftan og hlið og svo jafnvel 1-2 þar sem þú ert að spenna vöðvana.

Myndirnar eru bara fyrir þig en mér finnst líklegt að ég verði með smá „samkeppni“ á þriggja mánaða fresti þar sem þær með mestu breytingarnar fá þá næsta mánuð ókeypis.

Mælingar

Ég er hrifnari af myndatökum og styrktaraukningu til að fylgjast með árangri, en það getur verið gott að taka reglulega mælingar líka. Þú ættir að geta fengið næsta einkaþjálfara á þinni líkamsræktarstöð til að klípumæla þig fyrir lítið gjald, en þá skaltu alltaf fara til sama þjálfara. Heima getur þú mælt ummál yfir þessa helstu staði og stigið á vigtina. Passaðu bara að vigtin getur logið að manni. Þú getur verið að styrkjast og missa ummál en vigtin stendur í stað. Þá ertu mjög líklega að bæta á þig vöðvamassa.

Líðan

Ef þér líður betur, sefur betur og hefur meiri orku ertu að ná árangri þó svo að það sjáist kannski ekki á myndum eða á vigtinni. Lyftingarnar eru besta þunglyndis- og svefnlyf, og ég hvet þig til þess að skrifa reglulega niður hvernig þér líður, hvernig þú sefur og hvernig orkan er.

Í áskorununum sem haldnar hafa verið síðastliðið ár hefur verið haldin keppni með ýmsum atriðum til að ákvarða sigurvegara. Keppnin í Sumarprógramminu er aðeins með öðru sniði. Efsta sætið fær grunnpakka í næstu haustáskorun í verðlaun! Annað sætið fær 30.000 króna inneign hjá okkur og þriðja sætið 20.000 króna inneign.

 Keppnin snýst út á það að safna stigum fyrir ýmislegt, eins og til dæmis lyftingaræfingar, þolþjálfun, instagram mynd, þátttöku, endurheimt, svefn o.fl.

Það er engin leið til að koma í veg fyrir svindl og því verð ég bara að treysta á að þið séuð heiðarlegar því þetta er ekki keppni sem þið viljið vinna með svindli!

Þú merkir sjálf hvað þú gerir þann daginn, telur saman stigin þín og skjalið sér sjálft um að reikna út heildar stigafjölda.

Stigagjöfin eru eftirfarandi:

Lyftingaræfing: 3 stig (Hámark 12 stig á viku)

Sprettir: 2 stig (Hámark 6 stig á viku)

Fjallganga: 2 stig (Hámark 4 stig á viku)

Þolþjálfun: 1 stig (Hámark 4 stig á viku)

Endurheimt: 1 stig (Hámark 7 stig á viku)

8+ tíma svefn: 1 stig (Hámark 7 stig á viku)

#sterkarstelpur á Insta: 1 stig(Hámark 3 stig á viku)

Hámarksstig: 8 stig á einum degi

Skráðu í stigablaðið hér

Nánari reglur

  • Þú berð sjálf ábyrgð á að muna að fylla rétt inn í.
  • Á mánudagsmorgnum verður vikunni á undan lokað, ef þú ert ekki búin að fylla vikuna inn missir þú þau stig
  • Svefninn er nóttina áður. Semsagt ef þú vaknar á mánudegi eftir 8+ tíma svefn færðu stig fyrir það á þeim degi.
  • Það má bara gera eitt atriði úr hverjum flokki daglega.
  • Hámarks stigafjöldi á einum degi eru 8 stig.

Lyftingaræfing

Þetta eru einungis lyftingaræfingar úr prógramminu eða æfing úr heima/úti prógrömmunum. Hámark 3 lyftingaræfingar í viku og ekki er hægt að vinna upp æfingar sem þú hefur misst af.

Sprettir/lotuþjálfun

Þetta eru sprettir eða lotuþjálfun þar sem þú tekur á því í ákveðinn tíma og hvílir svo á móti. Tabata, brekkusprettir, spinning, sprettir á hjóli, róðravél, hlaupabretti. Complexar heyra líka undir lotuþjálfun. Þarf að vera amk 10 mínútur til að telja með.

Fjallganga

Segir sig nokkuð sjálft en þarf að vera amk 60 mínútna ganga til að fá stig fyrir þetta. Setur instagram mynd á toppnum og færð auka stig! Má gera göngu á bretti í halla 15 í 60 mínútur ef það er brjálað veður eða þú kemst ekki á fjall.

Þolþjálfun

Þjálfun þar sem þú heldur sama álagi yfir æfinguna. Þetta er til dæmis skokk, sund, hjól, stöðugt sipp og slíkt. Þarft að mæðast aðeins en ekki það mikið að þú getir ekki haldið uppi samræðum. Þarf að vera amk 20 mínútur til að telja.

Endurheimt

Þetta er svolítið opinn flokkur, þið þurfið bara að spyrja inná grúbbunni og ég bæti inn í hann. Þetta má til dæmis vera:

  • Yoga amk 20 mín
  • Rúllun eða einhverskonar bandvefslosun amk 15 mín
  • Teygjur amk 15 mín
  • Hugleiðsla eða slökun amk 15 mín
  • Heitur pottur eða sauna amk 20 mín
  • Nudd amk 20 mín
  • Heitt/kalt til skiptis amk 10 mín
  • Léttur göngutúr amk 30 mín
  • Sjósund(í köldum sjó) nokkrar mínútur

+8 tíma svefn

Erfitt yfir sumartímann en ef þú nærð 8 tíma svefni eða meira færðu stig fyrir það! Þarf ekki að vera óslitinn en amk +8 tímar þar sem þú liggur á koddanum og gerir ekkert nema að reyna að sofa.

#Sterkarstelpur á Insta

Bara hægt að fá stig fyrir 3 myndir á viku, en endilega birtið fleiri myndir. Aðgangurinn þarf að vera opinn til að þetta telji með. Margar hafa búið til sér instagram aðganga fyrir STERKAR STELPUR áskoranirnar. Í boði líka að pósta bloggi, Facebook póstum eða einhverju slíku á opinberum vettvangi og fá stig fyrir það.